SAMSUNG ÞVOTTAVÉL/ÞURRKARI 8KG

SAWD84T634CBE/S4

SAMSUNG ÞVOTTAVÉL/ÞURRKARI 8KG

SAWD84T634CBE/S4
  • Með innbyggðum þurrkara
  • Taumagn við þvott: 8 kg
  • Taumagn við þurrkun: 5 kg
  • Orkuflokkur: E
139.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Samsung þvottavélin og þurrkarinn fer vel með þvottinn þinn. Hún er með EcoBubble, AirWash og fjölda annara sniðugra eiginleika.

Gervigreind
Með gervigreind „SmartThings“ getur vélin valið þvottakerfi allt eftir tegund efnis og þyngd þvottsins. Gervigreindin lærir inn á þínar þvottavenjur, kemur með tillögur að þvottakerfum og velur sjálfkrafa þurrkunarkerfi.

Tímstillt ræsing
Hægt er að seinka ræsingu ef óskað er eftir því að vélin klári að þvo á einhverjum ákveðnum tíma t.d. um það leyti þegar farið er á fætur.

EcoBubble tækni
Þvoðu þvottinn þinn á skilvirkan hátt með minni orku, tíma og fyrirhöfn. Eco Bubble tryggir kraftmikinn en þó mildan þvott við lágan hita. Þvottaefnið leysist upp, breytist í loftbólur og smýgur þannig mun betur og fyrr inn í efnið. EcoBubble leysir þannig betur upp óhreinindi og bletti svo auðveldar sé að þvo þá en verndar jafnframt liti og áferð þvottsins.

Sápuskammtari
Fylltu á tankinn með fljótandi þvottaefni og þvottavélin ákveður sjálf hversu mikið magn af þvottaefni hún þarf að nota. Sjálfvirk skömmtun þýðir að þú sparar tíma þar sem þú þarft ekki að fylla á þvottaefni og mýkingarefni fyrir hvern þvott. Og jú þú getur þú notað gamla góða duftþvottaefnið ef vill.

Þvottakerfin
Þvottavélin er með öll helstu þvottakerfin eins og orkusparnaðarkerfi, bómullarkerfi, kerfi fyrir viðkvæman þvott og gerfiefni. Stutt kerfi fyrir lítinn þvott og ullarkerfi þar sem þvotti er vaggað í litlu vatnsmagni.

AirWash
Fjarlægir vonda lykt úr þvottinum þínum þannig að hann lyktar alltaf eins og nýþveginn. Fjarlægir líka allt að 99,9% af bakteríum með aðeins upphituðu lofti engu vatni eða þvottaefni.

Hreinlætisgufa
Fjarlægir ofnæmisvalda og 99,9% af bakteríum. Gufan losnar úr neðri hluta tromlunnar og tryggir þannig að hver flík er rétt hreinsuð.

Leggja í bleyti
Leggja í bleyti „Bubble Soak“ hjálpar þér að losna við „þrjóska“ bletti eins og grasgrænu, kaffi og farða. Þvotturinn liggur í bleyti í ca 30 mínútur áður en þvottavélin byrjar að þvo með völdu þvottakerfi.

Tromluþvottur+
Tromluþvottur+ „Drum Clean+“ fjarlægir óhreinindi og 99,9% af bakteríum sem orsaka vonda lykt í tromlunni og fjarlægir um leið óhreinindi í kringum hurðargúmmíið. Minnir þig á þegar tími er komin á tromluþvott.

Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakt festisett ef ætlunin er að setja aðra vél ofan á.

Viðhald
Hafa ber í huga að hreinsa þarf allar þvottavélar reglulega. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill fá í þvottinn sinn. Þvottavélin er með sérstökum tromluþvotti til að losa þig við slíkt vandamál.

Og svo hitt
Þurrkarinn er barkalaus með rakaskynjara. Vatn og ló sem kemur frá þurrkaranum fer út með affallinu frá þvottavélinni. Tækið er frábær lausn fyrir heimili þar sem ekki er mögulegt að hafa tvö aðskilin tæki.

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Þvottavél með þurrkara
Framleiðandi Samsung
Mesta þyngd þvotts í þvottavél 8 Kg
Mesta þyngd þvotts í þurrkara 5 Kg
Stærð frístandandi í mm (HxBxD) 850x600x680
Litur Hvítur
Orkuflokkur, þvottur C
Orkunotkun á 100 þvotta  63 kwst
Orkuflokkur, þvottur og þurrkun E
Orkunotkun á 100 þvotta og þurrkanir 326 kwst
Vinduhraði mest 1400 snúningar á mínútu.
Þeytivinduafköst B
Þvottahæfni A
Vatnsnotkun við þvott 48L
Innbyggður hitastillir Kalt til 90°C.
Hljóðflokkur A, 72 dB við þeytivindu
Barnalæsing Já, hurð og stjórnborð eru læst við þvott.
Tímaval Hægt að seinka gangsetningu.
Sjálfvirkur skammtari fyrir þvottaefni
Kolalaus mótor
Nettengjanleg
Ljós í tromlu Nei
Öryggi 10 amper