Afhendingarmátar

PANTAÐ Á NETINU - HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ - ORMSSON HEIMKEYRSLA

Heimkeyrsla kr. 8.990, allt að þrjú tæki, kr. 12.990 allt að 6 tæki.
(á við allar vörur nema tvöfalda kæliskápa, gjald fyrir þá er skv. gjaldskrá sendibílaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu)

Ekki er hægt að óska eftir ákveðnum tíma, bílstjóri hringir í viðskiptavin með góðum fyrirvara.
Bílstjóri afhendir vöru inn í notkunarrými, ef aðgengi er ekki gott þá afhendir hann vöruna þar sem gott aðgengi er, ef ekki er hægt að afhenda vöruna vegna slæms aðgengi þá er varan tekin til baka og nýr afhendingartími ákveðin í samráði við viðskiptavin á hans kostnað.
Bílstjóri setur ekki upp vörur né tengir þær. Bílstjóri aftengir ekki eldri vörur.
(frávik frá þessu gætu orðið ef miklar annir koma upp eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum)
ATH, á EKKI við um innréttingar.

 

PANTAÐ Á NETINU - PÓSTSENDINGAR / PÓSTBOX (LITLIR PAKKAR, ALLT AÐ 10 KG)

Póstur heim kr. 1.890 - Póstbox kr. 990 
(á við litla pakka allt að 10 KG)

Ef pantað er fyrir kl. 12 fer póstur frá okkur á pósthús samdægurs, annars næsta virka dag á eftir. 
(frávik frá þessu gætu orðið ef miklar annir koma upp eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum)

 

PANTAÐ Á NETINU - LANDSBYGGÐIN - FLYTJANDI

Pakki á næstu afgreiðslu Flytjanda kr. 8.990, allt að þrjú tæki, kr. 12.990 fyrir allt að 6 tæki
(á við allar vörur nema tvöfalda kæliskápa, gjald fyrir þá er skv. gjaldskrá Flytjanda, eða annara flutningsaðila)

Ef pantað er fyrir kl. 12 fer varan á afgreiðslu Flytjanda samdægurs, annars næsta virka dag á eftir.
(frávik frá þessu gætu orðið ef miklar annir koma upp eða af öðrum óviðráðanlegum orsökum)

 

PANTAÐ Á NETINU - SÓTT Í VERSLUN

Að sjálfsögðu er svo hægt að sækja pantanir í verslun okkar í Lágmúla 8 eða vöruhús okkar á Holtaveg 8.
Viðskiptavinur fær tölvupóst hvert má sækja vöruna. 

UNDANTEKNINGAR

Þegar það eru vinsælir netdagar þá getur afhending tafist um virkan dag en viðskiptavinur er alltaf látinn vita ef afhending dregst.