BORA KÆLI - OG FRYSTISKÁPUR MEÐ KLAKAVÉL TIL INNBYGGINGAR, 559 x 1770 x 546 mm

BORAC178KGW\2

BORA KÆLI - OG FRYSTISKÁPUR MEÐ KLAKAVÉL TIL INNBYGGINGAR, 559 x 1770 x 546 mm

BORAC178KGW\2
  • Lítrar: Kælir 175 / Frystir 71
  • Hljóð: 34 dB
  • Orkuflokkur: D
  • Með frystir
Upplýsingar í búð
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • V
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

BORA kæliskápurinn er til uppsetningar inn í innréttingu og nauðsynlegt er að setja innréttingarhurð framan á hann. Hann er glæsilega hannaður, vel skipulagður og með vatnstengingu. Þannig býður kæliskápurinn upp á bestu mögulegu skilyrðin til að geyma matvælin þín. Myndaðu fullkomið samræmt heildarútlit í eldhúsinu þínu með þessum glæsilega kæliskáp.

Hönnun
BORA kæliskápsins er einstaklega glæsileg og tekur mið af þínum þörfum. Innréttingin er hvít í bland við svarta tóna. Kæliskápurinn er með hillum úr hertu gleri og ferskvöruskúffum á útdraganlegum brautum. Toppurinn í hönnuninni er svo hin stórglæsileg lýsing í skápnum.

Sveigjanleiki
Sérstaklega hannaðir fylgi- og aukahlutir sem einkennast af mörgum notkunarmöguleikum og sveiganleika. Þeir auka þægindi og vinnuhagræðingu þar sem hægt er að taka þá úr kæliskápnum, setja beint á borðstofuborðið og nota sem framreiðsluílát. Hægt er að kaupa sérstaka aukahlutapakka til að auka notagildi kæliskápsins.

Aukahlutapakki
Glæsilegir aukahlutapakkar eru í boði fyrir þennan kæliskáp. Aukahlutapakki BORAK178GS2 og aukahlutapakki BORAK178S2

Klakavélin
Framleiðir allt að 1.2 kg af klökum á sólarhring. Klakarnir fara í sérstakt hólf sem er í efstu frystiskúffunni. Kæliskápurinn byrjar ekki að framleiða klaka fyrr en um sólarhring eftir að klakavélin er virkjuð.

Ferskvörugeymsla
BORA ferskvörusvæðið bíður upp á fullkomin geymsluskilyrði fyrir ferskvöru og tryggir enn betri og lengri geymslu á henni. Matvælin eru geymd við hitastig sem er nálægt 0°C og þannig viðheldur ferskvaran betur vítamínum, bragði, ilmi og girnilegu útliti. Skúffurnar er hægt að fjarlægja á þægilegan hátt til að setja i þær vörur eða til að þrífa.

Lýsing
Tvær innfelldar ljósasúlur eru í sitthvorri hlið kæliskápsins sem lýsa rýmið upp á jafnan og fallegan hátt. LED lýsing er sparneytin og jafnframt umhverfsvæn.

Hljóð
BORA kæliskápurinn er einstaklega hljóðlátur eða aðeins 34 dB.

Hraðkæling
Tryggir að hægt að er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar hitastigið í +2 til +4°C í allt að 18 klukkutíma.  

Hraðfrysting
Hægt er að frysta mikið magn af mat á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar frystistigið í ákveðinn tíma eftir það fer frystirinn aftur í fyrri stillingu.

NoFrost
Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og þú sparar þannig fullt af tíma og fyrirhöfn.

Orlofsstilling
Ertu á leiðinni í sumarfrí? Þá getur orlofsstillingin komið sér vel. Tæmdu kæliskápinn af matvörum og virkjaðu orlofsstillinguna. Orkunotkun minnkar og þú losnar við öll vandamál með óþægilega lykt og myglumyndun. Slökkva verður handvirkt á orlofsstillingunni.

Partýstilling
Aðgerðin stillir klakavélina á mestu framleiðslu og virkjar einnig hraðkælingu og hraðfrystingu. Slekkur sjálfkrafa á sér eftir sólarhring.

Hringrásarkæling
Kæliskápar BORA eru með varmakælingu og dreifa kælingunni jafnt og vel um kæliskápinn. Þannig heldur hann stöðugu hitastigi í öllum hornum kæliskápsins og með því móti nær hann kæla matvælin á sem bestan hátt.

Notendaviðmót
Snertiskjárinn gerir þér kleift að stjórna allri virkni skápsins með einföldum og þægilegum hætti. 

Og svo hitt
Kemur með hægri opnum sem hægt er að breyta. 

 

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Innbyggður
Framleiðandi BORA
Litur Hvítur, til innbyggingar
Tækjamál HxBxD í mm 1770x559x546
Innbyggingarmál HxBxD í mm 1780x560x550
Hámarksþyngd hurðar kælir 18 Kg
Hámarksþyngd hurðar frystir 12 Kg
Handfang Nei
Orkuflokkur D
Orkunotkun á ári 208 kWst
Hljóðflokkur B 34 dB
Kælirými 175 L
Frystirými 71 L
Jöfn dreifing á kælingu
NoFrost
Frystigeta á sólarhring 6 Kg
Hitastig í kælir +3 til +9°C
Hitastig í frystir   -15 til -26°C
Hraðkæling
Hraðfrysting
Hillufjöld í kæli 5
Skúffufjöldi í kæli 2
Skúffufjöldi í frysti 3
Flöskugeymsla
Klakavél
Hurðarviðvörun
Lýsing LED
Lamir Hægra megin
Lægsti umhverfishiti 10°C
Snúrulengd í mm 2200
Þyngd 72 Kg