AEG VEGGOFN NBA5P521AB SJÁLFHR. SVARTUR

HT944 035 081
slide 1 to 3 of 6

AEG VEGGOFN NBA5P521AB SJÁLFHR. SVARTUR

HT944 035 081
  • Srærð: 71 L
  • Orkuflokkur: A+
  • Sjálfhreinsibúnaður
  • SteamBake fyrir brauðbakstur
169.900 kr
Vara er uppseld í netverslun

Fáðu tölvupóst þegar varan kemur aftur

Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

AEG veggofn með helstu eldunarkerfum, sjálfhreinsun og kjöthitamælir. Auðveldur í notkun og með góðu innra rými. Hann er með My AEG Kitchen sem gerir eldhúsupplifun þína enn betri, sparar tíma og eykur þægindin. Glæsilegur ofn sem gefur þér tækifæri til að vera skapandi í eldhúsinu þínu.

Gott pláss
Veggofninn er með góðu innra rými eða 71 lítrar og hentar því vel fyrir stór heimili. Þú getur eldað mikið í einu og hefur nóg pláss fyrir jólakalkúninn.

My AEG Kitchen App
Með því getur þú stjórnað ofninum með símanum þínum. Hægt er að sækja appið annað hvort í Play eða App Store. Eins er hægt að skanna QR-kóða sem er á miða inni í ofninum.

Sjálfhreinsikerfi
Þú velur hreinsunnarkerfið og tímalengdina og ofnin byrjar strax að hita sig upp í 500°C og brennir öll óhreinindi að innan. Eftir á er hægt að strjúka öskuna auðveldlega í burtu.

Kjöthitamælir
Innbyggður kjöthitamælir hjálpar til við að ná sem bestum árangri við eldamennskuna.

Orkunotkun
Þessi veggofn er í orkuflokki A+ sem er þýðir orkusparnað fyrir þig og umhverfið.

Kerfin
Ofninn er með helstu kerfum eins og blástur, undir og yfirhita, pizza stilling (blástur með undirhita), einfalt grill, grill með blæstri og gufubakstur.

Gufubakstur
Er kerfi sem er fyrst og fremst ætlað fyrir brauðbakstur. Með þessu kerfi verður skorpan á brauðinu stökk og brauðið mjúkt.  

Stjórnun
Ofninum er stjórnað með snúningstökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun.

Hurðin
Er með mjúklokun þannig að hún skellist ekki sem verndar bæði hurðina og ofninn. Auðvelt er að taka ofnhurðina af t.d. þegar þarf að þrífa hana. Hurðin er með IsoFront Plus framhlið og hitnar því ekki.

Barnalæsing
Er á stjórnborðinu og kemur þannig í veg fyrir óæskilegar breytingar á stillingum. Hægt er að læsa ofnhurðinni þannig að litlir fingur geti ekki opnað hana.

Ljósið
Góð lýsing er í ofninum og kveiknar það sjálfkrafa um leið og hann er opnaður.

Fylgihlutir
Kjöthitamælir, 1 djúp skúffa, 2 grunnar skúffur,1 grind, útdráttarbraut og gufursett.

Og svo hitt
Ef opna þarf ofninn á meðan verið er að nota blástur þá slekkur hann á blæstrinum á meðan. Sjálfvirk slökkvun ef ofn gleymist í gangi. Hraðhitun sem er snilld þegar mikið liggur á.

 

slide 3 to 5 of 2