ELECTROLUX KÆLISKÁPUR ENC4ME33W 186CM HVÍTUR

HT925 993 582

ELECTROLUX KÆLISKÁPUR ENC4ME33W 186CM HVÍTUR

HT925 993 582
  • Lítrar: 230 kælir\101 frystir
  • Hljóð: 38 dB
  • Orkuflokkiur: E
  • LED lýsing
119.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Electrolux frístandandi kæliskápur með frysti niðri. Kæliskápurinn er með hraðkælingu og hann er góð lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsinnréttingu sem er.

Kæliskápurinn
Skápurinn er 230 lítrar að rúmmáli með tveimur skúffu. Tvær hillur eru í skápnum og að auki er gott gleymslupláss í hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.

Frystirinn
Frystirinn er með 101 lítra rúmmáli og þremur skúffum. Frystigeta er allt að 8 kg á sólarhring.

NoFrost
Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og sparar þú þannig fullt af tíma og fyrirhöfn.

ExtraChill lághitaskúffan
Er með lægra hitastigi en restin af kæliskápnum og hentar vel til geymslu á ýmsum ferskum mat eins og fiski, kjöti, áleggi og fleiru.

Stjórnborð
Inni í tækinu finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið á einfaldan máta. Innbyggði skjárinn sýnir þér hvaða kælistig er í skápnum.

Hraðkæling
Hraðkæling tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður í ákveðin tíma og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.

Hraðfrysting
Sem er frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt. Aðgerðin hækkar frystistigið niður í ákveðin tíma og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.

Multi Flow
Tryggir gott loftflæði í kæliskápnum og dreifir þannig kælingunni jafnt um kæliskápinn svo að matvæli geymast við mun betri skilyrði og þau haldast fersk lengur. 

Lýsing
LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. Veldu þann kæliskáp sem er með þeirri lýsingu er best hentar þínum þörfum. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.

Viðvörun
Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð. Lætur þig líka vita ef hitastigið í honum verður óeðlilega hátt.

Og svo hitt
Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.

 

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Frístandandi
Framleiðandi Electrolux
Litur Hvítur
Tækjamál HxBxD í mm 1860x595x650
Handfang Innfellt
Orkuflokkur E
Orkunotkun á ári 250 kWst
Hljóðflokkur C 38 dB
Kælirými 230 L
Frystirými 101 L
Frystigeta á sólarhring 8 Kg
No Frost
DynamicAir Nei
Multi Flow
Extra Chill skúffa
Metal Cooling Nei
Hraðkæling
Hraðfrysting
Flöskugeymsla Nei
Klakavél Nei
Hurðarviðvörun
Lýsing LED
Hillufjöldi í kæli 2
Skúffufjöldi í kæli 2
Skúffufjöldi í frysti 3
Lamir Hægra megin
Lægsti umhverfishiti 10°
Snúrulengd í mm 2500
Kolalaus pressa