AEG SPANHELLUBORÐ IAE64841FB 60CM

HT949 597 620

AEG SPANHELLUBORÐ IAE64841FB 60CM

HT949 597 620
  • Spanhelluborð
  • Með sniðbrún
  • Dökkgrátt
  • 59 cm á breidd
129.900 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Spanhelluborð frá AEG með þægilegu stjórnborði, tímastilli og „OptiHeat“. Dökkgrátt að lit og með sniðbrún.

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Tvær hellur verða 21 cm að stærð, ein 18 cm og ein 14.5 cm. Hellurnar vinstra megin eru samtengjanlegar.

Stjórnborð
Þú velur helluna sem þú ætlar að nota og einfaldlega stillir hitastigið, á þeirri hellu, með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum. Skjár er á helluborðinu er sýnir ýmsar nytsamlegar upplýsingar.

Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.

Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.

Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.

Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu sýnir eftirhitagaumljósið „H“ ef það er enn of mikill hiti á hellunum og slokknar þegar þær hafa kólnað. Þannig forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að halda matnum heitum.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.

Og svo hitt
Eldaðu uppáhalds matinn þinn með þessu frábæra spanhelluborði

 

Tæknilegar upplýsingar

Tegund Spanhelluborð
Gerð Með sniðbrún
Framleiðandi AEG
Litur Dökkgrár
Ytra mál í mm HxDxB 44x520x590
Gatmál í mm DxB 490x560
Heildarafl 7350 W
Fremri vinstri hella, w/mm 2300-3200/210
Fremri hægri hella, w/mm 1400-2500/145
Aftari vinstri hella, w/mm 2300-3200/210
Aftari hægri hella, w/mm 1800-2800/180
Hægt að tengja saman hellur
Eftirhitagaumljós
Hægt að gera hlé á eldun
Hægt að halda heitu
„Hob2Hood“
„OptiHeat“
„Boostervirkni“
Barnalæsing
Sjálfvirk öryggisslökkvun
Tímastillir
Nettengjanlegt Nei
Útskurðarradíus