Samsung Þurrkari 7 KG

SADV70TA000DE/EE

Samsung Þurrkari 7 KG

SADV70TA000DE/EE
  • Taumagn: 7 kg
  • Vamadæla
  • Rakaskynjari
  • Orkuflokkur A++
89.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Samsung DV70TA þurrkarinn er með varmadælutækni, OptimalDry og rakaskynjara. Hann fer vel með fötin þín, með hraðkerfi og kolalausum mótor. Breytir gufu í vatn og dælir því upp í tank sem er auðvelt er að tæma, en affalsslanga fylgir með og því einnig hægt að tengja við niðurfall. Þessi þurrkari er frábær valkostur fyrir öll heimili.

Þurrkgeta
Þurrkarinn er með 7 kg þurrkgetu og hentar fyrir öll heimili, stór sem smá.

Varmadælutækni
Vilt þú vera umhverfisvæn/n og sparneytnin en jafnframt geta þurrkað þvottinn þinn á skilvirkan máta? Þá er varmadæla málið fyrir þig en meginatriðið í varmadælutækninni er hæfileikinn til að endurnýta umfram hita eftir að rakt loft hefur kólnað og þéttst. Þessi tækni gerir þurrkaranum einnig kleift að þurrka þvottinn við lægra hitastig sem fer betur með þvottinn. Varmadælutæknin lækkar orkunotkunina umtalsvert, þurrkar á lægra hitastigi og fer þar af leiðandi betur með þvottinn og veskið.

Kerfi
Hægt er að velja um fjölda kerfa sem henta fyrir allar týpur af fötum, þar á meðal útivistarfatnað, rúmföt, handklæði og viðkvæm föt. Hraðkerfi, ull, og blandaður þvottur. Sótthreinsandi kerfi, tímaþurrkun og viðrun með heitu lofti sem fjarlægir óæskilega lykt. Hægt er að velja um þrjú þurrkstig, þurrt, meðal þurrt, strauþurrt.

Hraðkerfi
Með hraðkerfinu getur þú þurrkað lítið magn af þvotti (1 kíló) á stuttum tima eða aðeins 35 mínútum.

Optimal Dry
Notar þrjá skynjara til að ná sem bestum árangri. Mælir rakastigið í þvottinum og stillir síðan þurrktímann eftir rakastigi hans. Þannig að þurrkuninn gengur hratt og vel  fyrir sig og notar sem minnsta orku. Með þessari tækni verður þvotturinn aldrei ofþurrkaður.

Krumpuvörn
Bættu krumpuvörn við þurrkkerfið og eftir þurrkun mun þurrkarinn velta tromlunni af og til án hita í allt að 180 mínútur. Þetta kemur í veg fyrir að þvotturinn þinn liggi of lengi á sama stað á meðan hann er enn heitur og myndast því ekki krumpur á honum.

Orkuflokkur
Þurrkarinn er í orkuflokki A++, sem þýðir að hann er mjög umhverfisvænn og hjálpar þér að draga úr orkunotkun.

Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakt festiset ef ætlunin er að setja þurrkarann ofan á þvottavélina.

Og svo hitt
Hægt að stilla fram í tímann, allt að 24 tímum. Áminning um losun vatnstank, hreinsun sigtis og þéttibúnað. Sjálfvirk slökkvun ef gleymist að slökkva á þurrkaranum sem dregur úr orkunotkun. Tvöfalt lósigti, engin þörf á sigti við þéttibúnað. Hljóðmerki sem minnir á að þurrkun sé lokið.

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Þurrkari barkalaus
Framleiðandi Samsung
Stærð í mm HxDxB 850x650x600
Mesta taumagn 7 Kg
Litur Hvítur
Orkuflokkur A++
Orkunotkun á ári kWst 211
Hljóðflokkur 65 dB(A)
Varmadælutækni
Barkalaus
Þurrkhæfni B
Rakaskynjari
Krumpuvörn
Starttímaseinkun
Tímastýring
Sýnir eftirstöðvar tíma
Kolalaus mótor
Ljós í tromlu Nei
Smart Control Nei
Skógrind Nei
Hurðarlöm Hægra megin
Öryggi 10 amper
Þyngd 50 kg