Samsung Combiofn Bepsoke
Samsung Combiofn Bepsoke
- Lítrar: 50
- Með örbylgju
- Gufuhreinsun
- Nettengjanlegur
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
Samsung Bespoke combiofninn er glæsilegur ofn sem gefur þér tækifæri til að vera skapandi í eldhúsinu þínu. Hann er með er með tvöfaldri viftu, örbylgjukerfi og SmartThings sem gerir eldhúsupplifun þína enn betri, sparar tíma og eykur þægindin. Þessi glæsilegi combiofn fullkominn fyrir minni eldhús eða sem aukaofn í þau stærri.
Vegg- og örbylgjuofn
Auk þess að vera venjulegur ofn er hann líka örbylgjuofn sem eldar og hitar mat mun hraðar og jafnar. Þú getur líka sameinað báða hlutana þannig að réttirnir séu eldaðir t.d. á bæði blæstri og örbylgju.
Stjórnun
Ofninn er með 2.25 tommu LCD skjá, snertistjórnun og snúningstakka. Skjárinn gefur einnig góða yfirsýn yfir það sem er að gerast í ofninum.
AirFryer kerfi
Með AirFryer bakkann í ofninum hreyfist heita loftið í honum stöðugt og eldar þannig matinn þinn með hinni fullkomnu skorpu og stökkri áferð.
SmartThings app
Gerðu eldhúsupplifun þína enn ánægjulegri með SmartThings Cooking sem bæði sparar tíma og dregur úr fyrirhöfn við matreiðslu. Með því að skilja þínar þarfir í eldhúsinu þá kemur SmartThings Cooking með tillögur að uppskriftum er henta fyrir þig.
Pro Steamer
Útbúðu einfalda og safaríka rétti með Pro Steamer. Lokið á honum er úr ryðfríu stáli sem hjálpar til að viðhalda raka og kemur í veg fyrir að maturinn þorni.
Gufuhreinsun
Gufuhreinsikerfið hjálpar þér að hreinsa fitu og matarleifar innan úr ofninum þínum. .
Tvöföld vifta
Tvær viftur sem dreifa hitanum jafnt og þétt um ofninn og halda hitastiginu stöðugu. Vifturnar snúast í sitt hvora áttina og ná þannig bestu dreifingunni.
Kerfin
Þú getur valið á milli fjölmargra eldunarkerfa eins og blástur, undir og yfirhita, grill, sparnaðarkerfi, örbylgjukerfi ásamt fleirum
Fylgihlutir
Pro Steamer, 3 grindur og 2 grunnar skúffur.
Og svo hitt
Ofninn er með 50 lítra innra rými.