AIRFORCE SPANHELLUBORÐ SLIM PRO ONB 90 VS
AIRFORCE SPANHELLUBORÐ SLIM PRO ONB 90 VS
- Innbyggð vifta
- Niðurfellanlegt
- Orkuflokkur A++
- 90 cm á breidd
VARA VÆNTANLEG
- V
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
Spanhelluborð frá Airforce með innbyggðri viftu sameinar tvö eldhústæki í eitt og mætir þannig helstu þörfum eldhússins. Helluborðið er með sleðatökkum, „Zero Moisture“ og viftu sem opnast sjálfkrafa.
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum sem geta orðið 21 cm að stærð. Hellurnar eru allar í einni röð fyrir framan þig þannig að eldamennskan verður mun skemmtilegri og þú þarf ekki að teygja þig yfir fremri helluna til að hræra í pottinum á þeirri aftari.
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
Pása
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.
Innbyggð vifta
Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan sýgur gufu og lykt beint af hellunnni svo það verði alltaf hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.
Kolafilter
Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti. Viftan lætur vita þegar þarf að skifta um kolafilter og þegar þarf að þrífa fitufilterið.
„Zero-Moisture“ kerfi
Eftir að hafa slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á lægstu hraðastillingu í 20 mínútur, til þess að tryggja uppgufun á þeim raka sem eftir verður þegar eldamennski er lokið.
Og svo hitt
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni. Fitusíur má þvo í uppþvottavél.