AEG ÞVOTTAVÉL LR834N96L 9KG 1600SN
AEG ÞVOTTAVÉL LR834N96L 9KG 1600SN
- Taumagn: 9 kg
- Vindingarhraði: 1600
- Orkuflokkur: A
- 20 mínúta þvottakerfi
- V
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
AEG þvottavél í seríu 8000, tekur 9 kg og vindur 1600 snúninga. Með kolalausum mótor og er því hljóðlátari og endingarbetri. 10 ára ábyrgð á mótor. Innbyggður stafrænn skjár framan á vél. Hurðarlöm og krókur úr málmi. Ytrahús sinkhúðað (ryðgar ekki), 2 demparar og 2 gormaupphengjur. Tromlan er með sérstöku mynstri sem fer betur með þvottinn og ver hann gegn sliti. Sápuskúffa með 2 + 1 hólfum sem auðvelt er að taka úr og þrífa. Jet tækni sem skilar betri og jafnari þvottaárangri. Jet tækin er með árangursríkt úðarakerfi sem tryggir að vatnið dreifist jafnt og að hitastig vatnsins sé það sama um alla tromluna. Með ÖkoMix tækninni blandar vélin þvottaefni saman við vatn og leysir efnið upp áður en hún úðar því yfir þvottinn, með þessu næst betri virkni þvottaefnisins. Þvottavélin jafnar tau í tromlu fyrir vindingu. Innbyggður jafnvægis- og froðuskynjari. Öll helstu þvottakerfi, orkusparnaðarkerfi, bómullarkerfi, kerfi fyrir blandaðan þvott (59 mín), kerfi fyrir viðkvæman þvott og gerfiefni. Stutt kerfi fyrir lítinn þvott. Ullarkerfi þar sem þvotti er vaggað í litlu vatnsmagni. Vélin er Woolmark Green vottuð. Gufukerfi sem frískar upp á, fjarlægir slæma lykt og krumpur. “PlusSteam“, bættu við „PlusSteam“ og ljúktu völdu kerfi á gufu. Forþvottur, blettaþvottur og aukaskolun. Sérstakt hreinsikerfi fyrir þvottavélina sem kemur í veg fyrir að afgangs sápuefni fúlni í belgnum. Hægt að stytta þvottatíma á ákveðnum kerfum. Auðvelt að fjarlægja aðskotahluti úr dælu. Sjálfvirk öryggisslökkvun, ef gleymist að slökkva á vélinni (5 mín.).Tekur inn á sig kalt vatn.