AEG ÞURRKARI TR934N85C 8KG M.VARMADÆLU
AEG ÞURRKARI TR934N85C 8KG M.VARMADÆLU
- Taumagn: 8 kg
- Varmadæla
- Orkuflokkur: A+++
- Nettengjanlegur
- V
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
AEG þéttibúnaðsþurrkari með varmadælutækni í seríu 9000, tekur 8 kg mest. Varmadælutæknin lækkar orkunotkunina umtalsvert, þurrkar á lægra hitastigi og fer þar af leiðandi betur með tauið og veskið. Með rakaskynjara og tímastilli. Hurðarlöm er hægra megin en hægt er að breyta opnun. Auðvelt er að tæma vatnstank. Hægt er að tengja slöngu við affall (slanga fylgir ekki). Rakaskynjarar, stoppar þegar völdu þurrkstigi er náð. Hægt að velja tíma, láta þurrka í ákveðinn tíma frá 10 mín og upp í 120 mín. Þurrkkerfi eru meðal annars: Bómull ECO, bómull, gerviefni, hraðkerfi fyrir 3 kg, viðkvæmt, „MixDry“, rúmföt, dúnjakkar og útivistarföt. Sérstakt ullarkerfi en með því er hægt að þurrka ull og silki á öruggan hátt án þess að það ofþorni eða rýrni. Ullarkerfið er Wollmark Blue vottað. 3D „Scan“ tæknin skannar flíkina og les rakasigið í henni, þurrkar hana síðan út frá því. Þannig að t.d. dúnjakkar verða jafnþurrir og hitaeinangruninni helst betur í flíkinni. „AbsoluteCare“ notar varmadælutæknina ásamt hitastigi og nákvæmum trommuhreyfingum til að þurrka fötin þín, jafnvel viðkvæmustu efni. Tryggir að ullarflíkur minnki ekki og silki haldi lögun sinni. Snýr tromlu í báðar áttir og kemur í veg fyrir að tauið vöðlist saman. Hægt er að velja um þurrkstig á sumum kerfum. Ljós i tromlu. Hægt er að stjórna honum með AEG Care appinu.