AEG KÆLISKÁPUR ORC8M321 186CM SVARTUR
AEG KÆLISKÁPUR ORC8M321 186CM SVARTUR
- Lítrar: 225 kælir\103 frystir
- Hljóð: 34 dB
- Orkuflokkiur: C
- NoFrost
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
AEG frístandandi kæliskápur með frysti niðri. Kæliskápurinn er með hraðfrystingu, sjálfvirkri afhrímingu og er nettengjanlegur. Hann er því góð lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.
Kæliskápurinn
Er 225 lítrar að rúmmáli með tveimur skúffum. Tvær hillur eru í skápnum að auki er gott gleymslupláss í hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.
Frystirinn
Er með 103 lítra rúmmáli og þremur skúffum. Frystigeta er allt að 10 kg á sólarhring.
Nettengjanlegur
Hægt er að tengja kæliskápinn við snjallsíma og nýta sér þannig AEG appið til að nota til fullustu þá möguleika sem kæliskápurinn hefur upp á að bjóða.
Twin Cooling
Tvö aðskilin kælikerfi sem tryggja ferskleika án þess að lofti úr frysti sé blandað í kæli og öfugt. Þannig haldast ávextirnir þínir ferskir og ísinn í frystinum hélar ekki.
NoFrost
Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og þannig sparar þú fullt af tíma og fyrirhöfn.
Extra Chill lághitaskúffan
Er með lægra hitastigi en restin af kæliskápnum og hentar því vel til geymslu á ýmsum ferskum mat eins og fiski, kjöti, áleggi og fleiru.
Grænmetisskúffan
Hillan fyrir ofan grænmetisskúffuna er búin tækni sem stjórnar rakastiginu í grænmetisskúffunni. Þannig eykst geymslutími ávaxta og grænmetis.
Orlofsstilling:
Ertu á leiðinni í sumarfrí? Þá getur orlofsstillingin komið sér vel. Tæmdu kæliskápinn af matvörum og virkjaðu orlofsstillinguna. Orkunotkunin minnkar og þú losnar við öll vandamál með vonda lykt.
Stjórnborð
Inni i kæliskápnum finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið á einfaldan máta. Innbyggði skjárinn sýnir þér hvaða kæli- og/eða frystistig er í kæliskápnum.
Hraðkæling
Tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður í sex klukkustundir og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.
Hraðfrysting
Sem er frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt. Aðgerðin hækkar frystistigið niður 24 klukkustundir og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.
Multi Flow
Tryggir gott loftflæði í kæliskápnum og dreifir þannig kælingunni jafnt um kæliskápinn svo að matvæli geymast við betri skilyrði og þau haldast fersk mun lengur.
Lýsing
LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. Veldu þann kæliskáp sem er með þeirri lýsingu er best hentar þínum þörfum.
Viðvörun
Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð. Lætur þig líka vita ef hitastigið í honum verður óeðlilega hátt.
Og svo hitt
Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.
- Lítrar: 266 kælir\101 frystir
- Hljóð: 38 dB
- Orkuflokkiur: E
- LED lýsing
- Lítrar: 230 kælir \ 101 frystir
- Hljóð: 38 dB
- Orkuflokkiur: E
- NoFrost
- LÍtrar: 230 kælir/101 frystir
- Hljóð: 38 dB
- Orkuflokkur:E
- NoFrost