ELECTROLUX KERAMI. 30 CM
HT949 492 576
Keramik helluborð frá Electrolux sem er aðeins
30 cm að breidd, með snertistýringu og er auðvelt í þrifum. Er með pásutakka,
svart að lit og liggur ofan á borðplötunni. Þetta flotta helluborð hentar t.d.
vel í lítil eldhús, sumarbústaði og ég tala nú ekki um húsbílinn.
39.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Eldunarsvæði
Helluborðið er með tveimur hellum 14.5 og 12/18
cm að stærð.
Stjórnborð
Með
snertistjórnun sem er auðveld og þægileg í notkun. Þú einfaldlega velur helluna
sem þú ætlar að nota og stillir hitastigið á henni með því að ýta á plús/mínus.
Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.
Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á
helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt
hefur verið á barnalæsingunni.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er
tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.
OptiHeat
Þrjár
forstilltar hitastillingar, til að halda eldun áfram, halda heitu eða til að
velgja.
Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum.
Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri
stillingu.
Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu lýsir ljós á meðan það er að kólna. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.
Pottar og pönnur
Allir pottar og pönnur ganga á þetta helluborð. Þar á meðal gamla góða
íslenska pönnukökupannan. Gakktu úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé
hreinn og þurr áður en það er sett á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda
eldunarílátinu á helluborðinu.
Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi
eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og í
þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 4,55 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 60 × 37 × 11 cm |
| Vörumerki | ELECTROLUX |
| Litur | Svartur |
| Þyngd (kg) | 3,9 |
| Lengd kapals | 0,9 |
| Gerð / Sería | Ofan á borðplötu |
| Tegund | Keramikhelluborð |
| Wött (W) | 2900 |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Nei |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hægt að tengja saman hellur | Nei |
| Hob2Hood | Nei |
| Hægt að halda heitu | Já |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Nei |
| OptiHeat | Já |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Tímastillir | Já |
| Útskurðarradíus | 5° |
| Stjórnborð | Snertistjórnun |
| Orkunotkun á ári | Á ekki við |
| Öryggi (amp) | 16 |
| Kolafilter fylgir með | Á ekki við |
| Sogafköst mest (m3/klst) | Á ekki við |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 3,8 x 29 x 49 |
| Hella fremri w/mm | 1200W/145mm |
| Hella aftari w/mm | 700/1700W/120/180mm |
| Gatmál BxD (cm) | 27 x 49 |
| Módel númer | HOC336F |
| Strikamerki | 7332543982950 |
| Sogafköst minnst (m3/klst) | Á ekki við |
| Hljóðstyrkur mest (dBA) | Á ekki við |
| Hljóðstyrkur minnst (dBA) | Á ekki við |
| Kolafilter | Á ekki við |
| Vörunúmer | HT949 492 576 |



