Upplýsingar

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða
pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta
bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Tvær hellur verða 14,5 cm að stærð, ein 21 cm og ein veður 24 cm. Hægt
er að tengja saman hellurnar vinstra megin.

Stjórnborð
Með sleðatakka sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú einfaldlega velur helluna sem þú ætlar að nota og stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.

Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg
fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að
elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími
er liðinn.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum
sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á
pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.

Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu lýsir ljós á meðan það er að kólna. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er
að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða
pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu
úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.

Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.

Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem
rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 12,3 kg
Ummál pakkningar 12,8 × 63,4 × 88,9 cm
Litur

Svartur

Gerð / Sería

Niðurfellanlegt

Tegund

Spanhelluborð

Hella aftari hægri, w/mm

1500/2000W/210mm

Hella aftari vinstri, w/mm

1200/1600W/145mm

Barnalæsing

Já

Boostervirkni

Já

Eftirhitagaumljós

Já

Hella fremri hægri, w/mm

1200/1600W/145mm

Hella fremri vinstri, w/mm

2200/3000W/240mm

Hægt að tengja saman hellur

Nei

Hob2Hood

Nei

Hægt að halda heitu

Nei

Hægt að gera hlé á eldun

Já

WiFi

Nei

OptiHeat

Nei

Sjálfvirk öryggisslökkvun

Já

Tímastillir

Já

Útskurðarradíus

5°

Hella fyrir miðju w/mm

Á ekki við

Tækjamál HxBxD (cm)

6,5 x 78 x 52

Þyngd (kg)

11

Wött (W)

7200

Gatmál BxD (cm)

74 x 49

Öryggi (amp)

16

Lengd kapals

1,5 m

Vörumerki

AIRFORCE