Upplýsingar

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Helluborðið er með fjórum hellum sem allar verða 21 cm að stærð. Hægt er að sameina tvær hellur í eina sé þörf á stærra eldunnarsvæði.

Samtengjanlegar hellur
Bridge virknin gerir þér kleift að tengja saman tvær hellur til að búa til stærra eldunarsvæði fyrir stóra potta og/eða pönnur.

Stjórnborð
Sleðatakki sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú velur hvaða
hellu þú ætlar að nota og stillir hitastigið síðan með því að renna fingrinum
eftir sleðatakkanum.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími
er liðinn.

Boostervirkni
Bætir aukakrafti við eldunarsvæðin, í takmarkaðan tíma. Tilvalið þegar þarf að
snöggsteikja eða ná upp suðu.

Halda heitu
„Warming Function“ aðgerðin heldur hita á matnum án þess að hann brennist
eða haldi áfram að eldast.

Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.

Eftirhitagaumljós
Logar á meðan þær hellur er notaðar voru eru að kæla sig niður. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.

Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.

Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.

Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.

Innbyggð vifta
Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan sýgur gufu og lykt beint af hellunni svo það verði alltaf hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.

„Zero-Moisture“ kerfi
Eftir að hafa slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á
lægstu hraðastillingu í 20 mínútur, til þess að tryggja uppgufun á þeim raka
sem eftir verður þegar eldamennski er lokið.

Kolafilter
Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti. Viftan lætur vita þegar þarf að skipta um kolafilter og lætur einnig vita þegar
þrífa þarf fitufilterið.. 

Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 31 kg
Ummál pakkningar 65 × 98 × 55 cm
Litur

Svartur

Gerð / Sería

Niðurfellanlegt

Tegund

Spanhelluborð með viftu

Wött (W)

7400

Barnalæsing

Já

Boostervirkni

Já

Eftirhitagaumljós

Já

Hægt að halda heitu

Já

Hægt að gera hlé á eldun

Já

WiFi

Nei

Sjálfvirk öryggisslökkvun

Já

Tímastillir

Já

Tækjamál HxBxD (cm)

22 x 83 x 52

Hella aftari hægri, w/mm

2100/3000W/190/210mm

Hella aftari vinstri, w/mm

2100/3000W/190/210mm

Hella fremri hægri, w/mm

2100/3000W/190/210mm

Hella fremri vinstri, w/mm

2100/3000W/190/210mm

Hljóðstyrkur (dBA)

47/70 dB (A)

Hægt að tengja saman hellur

Já

Hob2Hood

Nei

Kolafilter fylgir með

Nei

Hella fyrir miðju w/mm

Á ekki við

Gatmál BxD (cm)

79,5 48

Lengd kapals

Ekki gefið upp

OptiHeat

Nei

Útskurðarradíus

Vantar upplýsingar

Sogafköst mest (m3/klst)

662 m3/klst

Vörumerki

AIRFORCE

Orkumerking

A+