Upplýsingar

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða
pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta
bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum sem verða allar 21 cm að stærð.

Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.

Sjálfvirk upphitun
Aðgerðin stillir helluna á hæsta hitastig um tíma og lækkar síðan hitann
niður í rétta stillingu.

Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.

Barnalæsing
Kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að halda eldun áfram, halda heitu eða til að
velgja.

Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum.
Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri
stillingu.

Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu lýsir ljós á meðan það er að kólna. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða
pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu
úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.

Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.

Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem
rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 14 kg
Ummál pakkningar 60 × 86,8 × 12 cm
Gerð / Sería

Sniðbrún

Tegund

Spanhelluborð

Litur

Svartur

Wött (W)

7350

Barnalæsing

Já

Eftirhitagaumljós

Já

Hægt að tengja saman hellur

Nei

Sjálfvirk öryggisslökkvun

Já

Tímastillir

Já

Vörumerki

AEG

Hella aftari hægri, w/mm

2300/3200W/125/210mm

Hella aftari vinstri, w/mm

2300/3200W/125/210mm

Hella fremri hægri, w/mm

2300/3200W/125/210mm

Hella fremri vinstri, w/mm

2300/3200W/125/210mm

WiFi

Nei

Hella fyrir miðju w/mm

Á ekki við

Boostervirkni

Já

Hob2Hood

Já með réttum gufugleypir

Hægt að gera hlé á eldun

Já

Gatmál BxD (cm)

75 x 49

Lengd kapals

1,5 m

Hægt að halda heitu

Já

OptiHeat

Já

Útskurðarradíus

5°

Tækjamál HxBxD (cm)

4,4 x 78 x 52

Þyngd (kg)

12,1

Öryggi (amp)

16