Upplýsingar

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Ein verður 21 cm að stærð, tvær 18 cm og ein 14,5.

Stjórnborð
Með snertitökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að ýta á plús og mínus.  

Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.

Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni.

Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.

Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.

Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu sýnir eftirhitagaumljósið „H“ ef það er enn of mikill hiti á hellunum og slokknar þegar þær hafa kólnað. Þannig forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að halda matnum heitum.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.

Og svo hitt
Eldaðu uppáhalds matinn þinn á þessu frábæra spanhelluborði

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 30 kg
Ummál pakkningar 49 × 56 × 44 cm
Vörumerki

AEG

Litur

Svartur

Dýpt (CM)

52

Hæð (CM)

4,4

Gerð / Sería

Sniðbrún

Tegund

Spanhelluborð

Wött (W)

7200

Aftari hægri hella, w/mm

1800-2800/180

Aftari vinstri hella, w/mm

1400-2500/145

Fremri hægri hella, w/mm

1800-2800/180

Fremri vinstri hella, w/mm

2300-3700/210

Gatmál í mm DxB

490×560

Breidd (CM)

59

Eftirhitagaumljós