AEG Spanhelluborð 6000 Flex Bridge 90cm
HT949 598 312
Spanhelluborð frá AEG sem bíður uppá sveiganleika við eldamennskuna. Þar sem helluborðið er 91 cm á breidd þá hefur þú mun meira og betra pláss fyrir stóra potta og pönnur. Með hitaminni, „FlexiBridge“ og er með sniðbrún. Einstaklega glæsilægt helluborð sem mun sóma sér vel í eldhúsinu hjá þér.
289.900 kr.
Aðeins 2 eftir á lager
Upplýsingar
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða
pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta
bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með þremur hellum og sveigjanlegu svæði. Tvær hellur verða 21 cm að stærð og ein 28 cm.
Sveigjanlegt svæði
Með „FlexiBridge“ getur þú hannað þitt eigið eldunarsvæði. Verið með fjögur lítil eða sameinað í eitt stórt sem er tilvalið fyrir grillpönnur og/eða þegar þú ert að elda marga rétti á sama tíma.
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
Hitaminni
Virkar þannig að helluborðið man stillingar í 60 sekúndur ef þarf að taka
pottinn af hellunni.
Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.
Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.
PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að halda eldun áfram, halda heitu eða til að
velgja.
Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum.
Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri
stillingu.
Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu sýnir eftirhitagaumljósið „H“ ef það er enn
of mikill hiti á hellunum og slokknar þegar þær hafa kólnað. Þannig forðastu
hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að halda matnum
heitum.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.
Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 25 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 60 × 98 × 12 cm |
| Vörumerki | AEG |
| Litur | Svartur |
| Tegund | Spanhelluborð |
| Wött (W) | 7350 |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 2300/3200W/210mm |
| Hella fremri hægri, w/mm | 2300/3200W/220mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 2300/3200W/220mm |
| Hella aftari hægri, w/mm | 2300/3200W/210mm |
| Hella fyrir miðju w/mm | 1800/2800/3500/3700W/180/280mm |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Hob2Hood | Já með réttum gufugleypir |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Nei |
| OptiHeat | Já |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Gerð / Sería | Sniðbrún |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hægt að tengja saman hellur | Já |
| Hægt að halda heitu | Já |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Útskurðarradíus | 5° |
| Þyngd (kg) | 22,26 |
| Tímastillir | Já |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 4,4 x 91 x 52 |
| Gatmál BxD (cm) | 88 x 49 |







