Upplýsingar
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni
og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu.
Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Tvær þeirra eru 14.5 cm að stærð og tvær
eru 21 cm.
Stjórnborð
Með snertitakka sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú einfaldlega velur
helluna sem þú ætlar að nota og stillir hitastigið á henni með því að ýta á
takkann.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar
valinn tími er liðinn.
PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná
upp suðu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er
að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða
pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu
úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.
Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem
rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 9,54 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 63,9 × 69,4 × 12,8 cm |
| Litur | Svartur |
| Gerð / Sería | Niðurfellanlegt |
| Tegund | Spanhelluborð |
| Wött (W) | 7200 |
| Hella aftari hægri, w/mm | 1500/2000W210mm |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 1500/2000W/180mm |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hella fremri hægri, w/mm | 1200/1600W/145mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 1500/2000W/180mm |
| Hægt að tengja saman hellur | Já |
| Hob2Hood | Nei |
| Tímastillir | Já |
| Hella fyrir miðju w/mm | Á ekki við |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 6,5 x 59 x 52 |
| Gatmál BxD (cm) | 54,4 x 48,8 |
| Þyngd (kg) | 9 |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Hægt að halda heitu | Nei |
| Hægt að gera hlé á eldun | Nei |
| WiFi | Nei |
| OptiHeat | Nei |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Útskurðarradíus | Ekki gefið upp |
| Öryggi (amp) | 16 |
| Vörumerki | AIRFORCE |



