AEG HELLUBORÐ 60 CM
HT949 598 304
AEG spanhelluborð sem er niðurfellanlegt ofan í borðplötuna, með sveigjanlegu svæði og
mörgum sniðugum eiginleikum. Það er nettengjanlegt, með TFT skjá og
kjöthitamælir. Glæsilegt helluborð með nútímalegu yfirbragði sem mun sóma sér
einstaklega vel í eldhúsinu þínu.
Original price was: 129.900 kr..89.990 kr.Current price is: 89.990 kr..
Á lager
Upplýsingar
Nettengjanlegt
Með
My AEG Kitchen Appinu getur þú fylgst með elduninni í símanum, fengið
eldunarráð og uppskriftir. Vistað þínar uppáhaldsstillingar, uppskriftir og fengið leiðbeiningar um hvernig á að nota ýmsar aðgerðir helluborðsins.
Stjórnborð
CookSmart snertiskjárinn gerir þér kleift að elda eins og þú vilt.
Þessi litríki TFT skjár gerir þér kleift að velja hitastig, eldunarsvæði og
aðra snjalla eiginleika.
Kjöthitamælir
Helluborðinu fylgir þráðlaus kjöthitamælir sem mælir kjarnhita matarins og
gerir þér kleift að steikja, sjóða og elda Sous-Vide á fullkomin hátt.
Aðstoðarkokkur
Í gegnum CookSmart Touch velurðu ákveðna eldunaraðferð/rétt
og helluborðið leiðir þig í gegnum ferlið. Þetta er
sérstaklega þægilegt ef þú manst ekki hvaða hitastilling
hentar hverju hráefni fyrir sig.
Pönnusteiking
Helluborðið getur, með Assisted Cooking, hjálpað þér að ná réttu hitastigi
fyrir steikingu. Það stillir hitastigið fyrir mismunandi tegundir matvæla og
viðheldur því í elduninni.
Suða
Þessi aðgerð aðlagar sjálfkrafa hitastigið og kemur þannig í veg fyrir að
það sjóði upp úr pottinum.
Að bræða
Aðgerðin er alveg tilvalin til að bræða, t.d. súkkulaði eða smjör.
Réttir
Með forstilltum kerfum hjálpar þessi aðgerð þér við að elda hina ýmsu
rétti.
OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að halda eldun áfram, halda heitu eða
til að velgja.
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á
pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld
viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með
fjórum hellum. Ein hella verður 14,5 cm að stærð, ein verður 18 og tvær verða
22 cm að stærð. Hægt er að tengja saman hellurnar vinstra megin.
Sveigjanlegt svæði
Með „FlexiBridge“ getur þú hannað þitt eigið eldunarsvæði. Verið með
fjögur lítil eða sameinað í eitt stórt sem er tilvalið fyrir grillpönnur og/eða
þegar þú ert að elda marga rétti á sama tíma.
Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.
Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á
helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt
hefur verið á barnalæsingunni.
Vistvænn tímastillir
Til að spara orku
slekkur hellan á sér rétt áður en valinn tími er liðinn.
PowerBoost
Háhitaspan er á öllum
hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
Afsakið
hlé
Pásutakkinn
setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á
pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Eftirhitagaumljós
Þegar slökkt er á helluborðinu lýsir ljós á meðan það er að kólna. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt
er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða
pönnunum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu
úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.
Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem
rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 10 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 60 × 65 × 12 cm |
| Vörumerki | AEG |
| Litur | Svartur |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Gerð / Sería | Niðurfellanlegt |
| Tegund | Spanhelluborð |
| Wött (W) | 7350 |
| Hella aftari hægri, w/mm | 1800/2800W/145 – 180mm |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 2300/3200W/220mm |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hella fremri hægri, w/mm | 1400/2500W/125 – 145mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 2300/3200W/220mm |
| Hægt að tengja saman hellur | Já |
| Hob2Hood | Já með réttum gufugleypir |
| Hægt að halda heitu | Já |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Já |
| OptiHeat | Já |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Tímastillir | Já |
| Útskurðarradíus | 5°/10° |
| Stjórnborð | Snertistjórnun |
| Kolafilter fylgir með | Á ekki við |
| Hella fyrir miðju w/mm | Á ekki við |
| Sogafköst mest (m3/klst) | Á ekki við |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 4,4 x 58 x 51 |
| Gatmál BxD (cm) | 4,4 x 56 x 49 |
| Módel númer | TH64IF50IB |
| Strikamerki | 7333394065663 |
| Sogafköst minnst (m3/klst) | Á ekki við |
| Hljóðstyrkur mest (dBA) | Á ekki við |
| Hljóðstyrkur minnst (dBA) | Á ekki við |
| Kolafilter | Á ekki við |
| Vörunúmer | HT949 598 304 |















