Upplýsingar

Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða
pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta
bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.

Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Ein hella verður 21 cm að stærð, ein 18 cm og tvær verða 14,5.

Stjórnborð
Stjórnaðu helluborðinu þínu á einfaldan og nákvæman hátt með snertitökkum.
Velur hvaða hellu þú ætlar að nota og stillir hittastigið með ör upp og ör niður tökkunum.

Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.

Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.

PowerBoost
Háhitaspan er á öllum hellum sem er tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.

Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr
skugga um það með því að setja segul á botninn á pottunum eða pönnunum, ef
segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur.

Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist betur. Slökktu á
helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það með mjúkum rökum
klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni. Ekki nota
stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.

Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem
rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin
snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 9,4 kg
Ummál pakkningar 60 × 67,8 × 12,5 cm
Wött (W)

6900

Barnalæsing

Já

Boostervirkni

Já

Eftirhitagaumljós

Já

Litur

Svartur

Lengd kapals

1,5 m

Gerð / Sería

Niðurfellanlegt

Tegund

Spanhelluborð

Hella aftari hægri, w/mm

1700/1800W/180mm

Hella aftari vinstri, w/mm

1400/1500W/145mm

Hella fremri hægri, w/mm

1400/1500W/145mm

Hella fremri vinstri, w/mm

2200/2400W/210mm

Hob2Hood

Nei

Hægt að gera hlé á eldun

Nei

WiFi

Nei

OptiHeat

Nei

Tímastillir

Nei

Útskurðarradíus

5°

Þyngd (kg)

8,6

Hægt að tengja saman hellur

Nei

Hægt að halda heitu

Nei

Sjálfvirk öryggisslökkvun

Já

Öryggi (amp)

16

Hella fyrir miðju w/mm

Á ekki við

Tækjamál HxBxD (cm)

4,8 x 59 x 52

Gatmál BxD (cm)

56 x 49

Vörumerki

AEG