SAMSUNG VEGGOFN DUAL (Sýniseintak)

SANV7B5670WCK/U1

SAMSUNG VEGGOFN DUAL (Sýniseintak)

SANV7B5670WCK/U1
  • Stærð: 76 L
  • Orkuflokkur A+
  • Sjálfhreinsibúnaður
  • Dual Cook
179.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Samsung Dual Cook veggofninn er frábær lausn þar sem ekki er pláss fyrir tvo ofna. Einn ofn, þrír möguleikar. Þú getur skipt ofninum upp í tvö aðskilin svæði og/eða notað hann sem eina heild. Hægt er að elda aðalréttinn í neðra hólfinu og meðlætið í efra hólfinu á öðru hitastigi eða nota allan ofninn fyrir stóra rétti eins og kalkún. Ofninn er með öllum helstu kerfum eins og blástur, undir og yfirhiti, blástur og undirhiti, blástur og yfirhiti, grill og auk þess eru um 40 sjálfvirk kerfi. Air Fry kerfið er fullkomin leið til að elda t.d. franskar þar sem allt verður stökkt og brúnt.  Air Sous Vide stilling sem eldar á lágum hita og heitum blæstri. Í þessari stillingu  heldur ofninn stöðugu lágu hitastigi í ofninum og steikin verður mjúk og safarík. Dual Cook Steam gerir þér kleift að útbúa holla gufusoðna rétti eða þú notar Add Steam þegar þú steikir eða bakar til að tryggja að maturinn verði bæði stökkur og safaríkur. Add Steam aðgerðin fyllir ofninn af gufu sem tryggir að maturinn missir mikið minna af sínum náttúrulegu efnum.og raka. Þannig að maturinn er mjúkur og safaríkur að innan en samt dásamlega stökkur og brún að utan. Fylgihlutir með ofninum eru djúp skúffa, útdráttarbraut, airfryer grind, venjuleg grind og grunn skúffa. Með SmartThings appinu getur þú stjórnað ofninum þínum. Hægt er að taka ofnhurðina af t.d. þegar þarf að þrífa hana. Hraðhitun sem er snilld þegar mikið liggur á. Fallegur og stílhreinn ofn sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.

 

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Veggofn
Týpa Dual Cook Steam
Sjálfshreinsibúnaður Já, pyrolysis
Litur Svartur
Orkuflokkur A+
Tækjamál í mm (HxBxD) 596x595x570
Innb.mál í mm (HxBxD) 579x560x549
Lítrar 76
Mjúklokun á hurð Nei
Ljós í ofni
Stjórntakkar  Snertistýring og snúningstakki  
Hitavalsrofi 30-250°C
Blástursmótor Já, tveir
Air Fryer kerfi
Air Sous Wide kerfi
Sjálfvirk kerfi
Klukka
Barnalæsing
Kjöthitamælir
Fylgihlutir 1 djúp skúffa, 1 grind, 1 airfryer grind o.fl.
Þyngd 43.7 Kg
Öryggi 16 amper