Samsung tvöfaldur kæli- og frystiskápur

SARF65A967FB1/EE

Samsung tvöfaldur kæli- og frystiskápur

SARF65A967FB1/EE
  • Lítrar: Kælir 397/Frystir 250
  • Hljóð: 37 dB
  • Orkuflokkur: F
  • Kælikerfi: Triple- og Metal cooling
469.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Samsung tvöfaldur kæliskápur með vatns- og klakavél. Kæliskápurinn er með nútíma hönnun og yfirborði sem auðvelt er að þrífa. Svarta stálið skapar óaðfinnanlegt útlit og gefur kæliskápnum lúxusyfirbragð. Gefðu eldhúsinu þínu heimilislegt og glæsilegt yfirbragð með þessum fallega kæliskáp.

Kæliskápurinn
Er með 397 lítra rúmmáli, fjórum hillum og tveimur skúffum. Að auki er mikið og gott geymslupláss í hurðum kæliskápsins.

Frystirinn
Er með tveimur aðskildum frystihólfum sem eru samtals 250 lítrar að rúmmáli. Í öðru frystihólfinu eru box fyrir klakann og hinu er hægt að breyta í kælirými.

Sveiganlega geymsla
Hægt er að breyta öðru frystihólfinu í geymslu fyrir t.d. drykki, kjöt, fisk, ávexti eða grænmeti. Cool Select+ er með fimm stillingum allt frá frosti niður í kælingu.

TwinCooling Plus
Tvö aðskilin kælikerfi sem tryggja ferskleika án þess að lofti úr frysti sé blandað í kæli og öfugt. Þannig haldast ávextirnir þínir ferskir. Ísinn í frystinum hélar ekki og klakarnir fá ekki keim af hvítlauk.

Nettengjanlegur
Hægt er að tengja kæliskápinn við snjallsíma og nýta sér SmartThings appið til að nota til fullustu þá möguleika sem skápurinn hefur upp á að bjóða.

Digital Inverter Tækni
Pressunni í skápnun er stjórnað með stafrænni tækni sem minnkar álagið á hana þar sem hún stillir sjálfkrafa hraða sinn. Hún sparar orku, lengir endingartíma sinn og lækkar hljóð.

Klakinn
Dual Auto klakavélin framleiðir bæði heila kubba og mulinn klaka. Klakinn safnast fyrir í sérstökum skúffum í frystihluta skápsins. Hann framleiðir 2,8 kg af klaka á hverjum degi og geymir allt að 3,1 kg.

Vatnið
Auðvelt er að fá sér ískalt vatnsglas eða nota sjálfvirka áfyllingu til að fylla á vatnskönnuna.

Stjórnborð
Inni í tækinu finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið á einfaldan máta. Innbyggði skjárinn sýnir þér hvaða kælistig er í skápnum.

Hraðkæling
Hraðkæling tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður í ákveðin tíma og eftir það fer kælirinn aftur í fyrri stillingu.

Metal cooling
Kæliplata úr málmi sem hjálpar til að halda réttu hitastig í skápnum 

NoFrost
Eða sjálfvirk afhríming tryggir að skápurinn hleður ekki inn á sig klaka og því þarf ekki að affrysta hann.

MultiFlow
Jöfn dreifing á blæstrinum í öllum hillurýmum kæliskápsins.

Lýsing
Með LED lýsingu sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.

Hurðarviðvörun
Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.

Og svo hitt
Tímalaus einföld og glæsileg hönnun

 

Tæknilegar upplýsingar

Gerð Frístandandi
Framleiðandi Samsung
Litur Svartur
Tækjamál í mm (HxBxD) 1825x912x723
Handfang Innfellt
Orkuflokkur F
Orkunotkun á ári 460 kWh
Hljóðflokkur C, 37 dB
Kælirými 397 lítrar
Frystirými 250 lítrar
Frystigeta á sólarhring 12 kg
Hraðfrysting
No Frost
Multi Flow
Cool Select +
Metal Cooling
Hraðkæling
Flöskuhilla Nei
Klakavél
Vatnsvél
Hillufjöldi í kæli 4
Skúffuföldi í kæli   2
Hillu/skúffufjöldi í frysti 6
Hurðarviðvörun
Lýsing LED
Kolalaus pressa Já 20 ára ábyrgð á pressu
Lægsti umhverfishiti 10°C
Nettengjanlegur
Þyngd 151 kg í pakningunni