ROMMELSBACHER LOFTTÆMINGARVÉL VAC 285

ROVAC 285

ROMMELSBACHER LOFTTÆMINGARVÉL VAC 285

ROVAC 285
  • Afl: 110 W
  • Vinnslubreidd: 30 cm
  • Litur: Svartur/stál
  • Slöngutenging
29.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Rommelsbacher lofttæmingarvélin er afkastamikil og dregur allt að 97% af loftinu úr lofttæmingarpokanum. Hún er með stóru handfangi sem gerir notkun hennar þægilega og auðvelt er að opna og loka henni á öruggan hátt.  

Lofttæmingarvélin
Lofttæmir og lokar í einni og sömu aðgerðinni. Tengimöguleiki er fyrir slöngu við  lofttæmingarílát, slangan fylgir með. Öflug dæla sem afkastar allt að 9 L á mínútu. Örugg lokun á plasti sem er 2.5 mm að þykkt.  Stöðubirting vinnuferlis og rafeindastýrður hiti á lokunarbúnaði.

Kostir
Lofttæming lengir geymsluþol matvæla allt að þrisvar til fimm sinnum og því ætti svona snilldargræja að vera til á hverju heimili. Já og ekki má gleyma, þú getur líka notað tækið til að undirbúa mat fyrir Sous Vide eldun.

Og svo hitt
Stamir fætur undir vélinni sem auka stöðungleika hennar. Til daglegrar notkunar á litlum sem stórum heimilum. 10 pokar, skeri og slanga fylgja með.