M0YA MATCHA PREMIUM LÍFRÆNT GRÆNT TE 30GR.

MIMM-PRE01-0001

M0YA MATCHA PREMIUM LÍFRÆNT GRÆNT TE 30GR.

MIMM-PRE01-0001
4.490 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Premium matcha í hæsta gæðaflokki með umami bragði og ríku og mjúku sætubragði.

Undirbúningur

Hefðbundin leið til að undirbúa matcha kemur frá japönsku teathöfninni. Það felur í sér að nota matcha skál, bambus pískara –chasen- og bambus skeið -chashaku. Settu 2 chashaku skeiðar af matcha (1,5 g) í matcha skál og helltu 100 ml af heitu vatni yfir (ekki heitara en 80 °C). Þeytið matcha kröftuglega með pískaranum, frá úlnliðnum í m-laga, ekki hringlaga, hreyfingu. Eftir um það bil 20 sekúndur ætti að hafa myndast fullkominni jade-græn froða. Þegar búið er að þeyta teið getur þú bætt við meira vatni til að gera það daufara.

Það er álíka auðvelt að blanda matcha saman með litlum hand mjólkuflóara. Bætið flatri teskeið af matcha (1,5 g) í bolla eða glas og hellið 100 ml af heitu vatni í glasið. Blandið vel saman og bætið meira vatni við ef vill. 1 teskeið gefur þér venjulega 200-250ml af matcha drykk. Rétt eins og með kaffi finnst sumum gott að drekka sterkan matcha espresso, aðrir vilja frekar bæta við vatni. Þú getur líka blandað matcha saman við safa eða mjólk.

Moya matcha Premium tilheyrir hæsta gæðaflokki og er úr yngstu og fínustu laufum úr fyrstu uppskeru. Moya premium er notað í hefðbundna teathöfn. Það er sætt og bragðmikið með rjómalagaðri áferð og einkennist ef líflegum og fallegum jadegrænum lit. Moya Matcha Premium fæst úr 1. uppskeru af teplöntum sem eru sérstaklega skyggðar fyrir beinu sólarljósi. Með skyggingunni næst fram hærri og meiri blaðgræna og aukins L-Theanin innihalds. Aðeins fínustu og viðkvæmustu ferskum laufum er safnað, þau þurrkuð og möluð í duft.

Tæknilegar upplýsingar

Upprunaland  Japan
Bragð  Umami, auðugt og mjúkt sætubragð
Mælt með í  Matcha athöfn með heitu eða köldu vatni. 
Innihald  100% lífrænt vottað matcha grænt te úr laufblöðum fyrstu uppskeru.