Upplýsingar

Ekki gera upp á milli hönnunar eða afkasta. Neo QLED skilar nákvæmari birtu og betri skyggingu sem og nákvæmni. Uppgötvaðu þúsundir af listaverkum í Art Store sem umbreyta sjónvarpinu þínu í lifandi listaverk þegar þú slekkur á því. Með glampalausu tækninni verða truflandi áhrif utanaðkomandi birtu nær engin og sjónvarpið lítur út eins og raunverulegt málverk. Þráðlausa tengiboxið gerir þér auðvelt að tengja öll tækin við sjónvarpið á snyrtilegan hátt.

 Modern Frame Design with Wireless One Connect

Hönnun sjónvarpsins er stílhrein og útbúin svo að hún geti legið þétt upp að vegg. Með þráðlausa One Connect boxinu geturðu auðveldlega tengt fylgihluti, svosem  myndlykla, við boxið sem þarf ekki nema að staðsetja innan 10 metra af skjánum. Þar að auki gera útskiptanlegu rammarnir* þér kleift að breyta útliti sjónvarpsins og jafnvel reynt stemma við innréttingu.
*Úrvalið á römmum getur verið misjafnt eftir landsvæði, rammar seldir sér.

Art Mode

Gjörbreyttu heimilinu þínu með Art Store, fáðu aðgang að yfir 5.000 sérvöldum listaverkum frá leiðandi söfnum, sýningum og listafólki.* Uppgötvaðu sígild klassísk listaverk og framúrstefnuleg samtímaverk sem einfalda þér að aðlaga útlit tækisins í samræmi við árstíðir, hátíðir, eða bara tilfinninguna sem þú vilt skapa í rýminu.

*Aðgangur bundinn við áskrift

Glare free with Neo–QLED

Þróaðasta glampavarnartækni Samsung til þessa er  hönnuð til að minnka endurkast svo það verði varla greinanlegt, sem og að draga úr bæði glampa og öðru ljósi. Niðurstaðan er kristaltær og þægileg upplifun sama hvernig aðstæður eru. Hvort sem kveikt er á stofuljósi eða kvöldsólin gægist inn um gluggann. Glampavörn með Neo–QLED bíður þér ótrúlega nákvæma birtustillingar sem bjóða bæði betri dýpt og smáatriði.

Vision AI Companion

Með Samsung gervigreindinni getur þú til að mynda beðið sjónvarpið að lækka sérstaklega í kynninum á boltaleik, fengið uppástungur að áfangastöðum eða jafnvel uppskriftir til að heilla gesti. Svörin skila sér beint upp á stóra skjáinn með viðeigandi myndbands- eða myndefni. Þar að auki sér gervigreindar örgjörvinn um að stilla mynd- og hljóðstillingar að bestu mögulegu upplifun miðað við efnið sem er í gangi.*

*Samskipti við gervigreindina eru á ensku. Eiginleikar geta breyst með tímanum og milli sjónvarpa. Samsung reikningur nauðsynlegur.

Customizable Frame

Hafðu sjónvarpið og heimilið í stíl. Rammar með seglum gera það einfalt að breyta útliti tækisins til að stemma við þinn stíl og þínar væntingar.

My Photo

Það er auðvelt að hlaða inn sínum eigin myndum til að sýna í listsýningunni. Þú getur sent beint úr snjallsíma eða af skýjaþjónustu á við Google Photos eða iCloud í gegnum SmartThings. Bættu við filterum, sérmerktu eftirlæti og búðu til þitt eigið persónulega gallerí.*

*Samsung reikningur nauðsynlegur.

Motion + Brightness sensor

Sjónvarpið skynjar bæði nærveru og birtustig herbergisins. Þegar þú gengur inn í rýmið kveiknar á skjánum og hann birtir valda list úr listsýningunni, svo slökknar þegar þú gengur út til að spara orku og endingu. Samhliða því aðlagar sjónvarpið sig að breytilegum birtuskilyrðum svo bæði list og myndefni fái að njóta sín óháð tíma dags.

*Aðgangur bundinn við áskrift

Pantone Validated

Litir sem þú getur treyst, með Pantone vottun eru 2140 Pantone litir og 110 húðlitir endurskapaðir með nákvæmni. Þetta þýðir raunverulegri blæbrigði, húðlitir og heilt yfir mynd sem endurspeglar raunveruleikann. Sem heimsins fyrsti sjónvarps framleiðandinn til að fá Pantone vottun setjum við nýjan staðal fyrir litanákvæmni inn á heimilum.

Dolby Atmos

Með Dolby Atmos® er þér dembt ofaní hljóðheim með fjölrása umhverfishljóm. Hlustaðu á öll smáatriði með aukinni dýpt og raunverulegum hljóðheim sem færir þig nær innlifuninni.

Q–Symphony

Með Q–Symphony samtengingu eru sjónvarpshátlarar í studdum Samsung sjónvörpum samnýttir með studdum Samsung hljóðstöngum. Þar sem venja er að slökkva á sjónvarpshátölurum þegar hljóðstangir eru tengdar. Þetta bíður ríkari og dýpri hljóðheim og innlifun, þar sem sjónvarpshátlarar bætast inn í Atmos hljóðrásina.*
*Athugaðu vel að hljómtækið þitt styðji Q–Symphony.


Eiginleikar