Upplýsingar

Í smekklegri hönnun með fullkomnum svörtum og engu truflandi
endurkasti mætir flottasta OLED tæknin okkar til þessa. Þökk sé Glare Free tækninni
kemst þú hjá því að verða fyrir truflunum í björtum herbergjum eða bara vegna
kvöldsólarinnar. Hönnunin skapar stílhreint
og háfleygt útlit sem er enn fremur bætt af málm ramma sem
leggst utanum tækið. Tækið getur legið þétt upp að vegg og jafnvel
svo þétt að það líti út fyrir að vera innfellt. Uppgötvaðu þúsundir af heims
frægum listaverkum í Art Store sem geta umbreytt sjónvarpinu þínu í
lifandi listaverk. Þróaði gervigreindar örgjörvinn tekur áhorf á næsta stig,
með einföldum raddskipunum getur þú beðið sjónvarpið að
slökkva á kynninum á boltaleik og valið hvernig upplifun þú vilt eiga.

Vision AI Companion

Með Samsung gervigreindinni getur þú til að mynda
beðið sjónvarpið að lækka sérstaklega í kynninum á boltaleik, fengið
uppástungur að áfangastöðum eða jafnvel uppskriftir til að heilla gesti. Svörin
skila sér beint upp á stóra skjáinn með viðeigandi myndbands- eða myndefni. Þar
að auki sér gervigreindar örgjörvinn um að stilla mynd- og hljóðstillingar að
bestu mögulegu upplifun miðað við efnið sem er í gangi.*

*Samskipti við gervigreindina eru á ensku. Eiginleikar geta
breyst með tímanum og milli sjónvarpa. Samsung reikningur
nauðsynlegur.

Pantone Validated

Litir sem þú getur treyst, með Pantone vottun eru
2140 Pantone litir og 110 húðlitir endurskapaðir með nákvæmni. Þetta
þýðir raunverulegri blæbrigði, húðlitir og heilt yfir mynd sem
endurspeglar raunveruleikann. Sem heimsins fyrsti sjónvarps framleiðandinn
til að fá Pantone vottun setjum við nýjan staðal fyrir litanákvæmni
inn á heimilum.

AI Motion Enhancer Pro

Gervigreindar hreyfimyndabestunin metur hreyfingu í rauntíma
til að tryggja að hröð atriði verði mýkri og skýrari. Boltinn í
leiknum, leikmenn á hreyfingu, eða bara texti á skjánum verður mýkri og bætir
innlifun, sérstaklega í hasarmyndum eða leikjum og íþróttum.

NQ4 AI Gen2 Processor

Þróaði örgjörvinn notar gervigreind til að bæta bæði mynd og
hljóð í rauntíma. Örgjörvinn sinnir uppskölun með 20 tauganetum, efni á lægri
upplausn er skalað upp og nálgast 4K myndgæði.  Hvort
sem um er að ræða leiki, íþróttir eða þætti þá
er upplifuninni sérsniðin til að auka skarpleikann.

Auto HDR Remastering

Færir nýtt líf í eldra efni. Sjálfvirk HDR bestun
notar gervigreind til að yfirfara og bæta SDR efni. Myndefnið er bætt senu
fyrir senu til að skila bjartari hápunktum, dýpri litum og dekkri skuggum,
jafnvel ef efnið er ekki upphaflega HDR.

Q-Symphony

Með Q-Symphony samtengingu eru sjónvarpshátlarar í
studdum Samsung sjónvörpum samnýttir með studdum Samsung hljóðstöngum.
Þar sem venja er að slökkva á sjónvarpshátölurum þegar hljóðstangir eru
tengdar. Þetta bíður ríkari og dýpri hljóðheim og innlifun, þar sem sjónvarpshátlarar bætast
inn í Atmos hljóðrásina.*
*Athugaðu vel að hljómtækið þitt styðji Q-Symphony.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 21,4 kg
Ummál pakkningar 15 × 139 × 83 cm
Orkumerking

E

Framleiðandi

Samsung

Þyngd (kg)

15.9

Bluetooth

Já (5.3)

Dolby Atmos

Já

Ethernet

Já

Fjöldi USB-C

0

Gerð / Sería

OLED

eARC

Já

HDR

OLED HDR+

HDR 10+

Já

Hljóð

40W

Myndvinnsla

NQ4 AI Gen3 Processor

Skjástærð (″)

55

Fjöldi HDMI tengja

4

Endurnýjunartíðni (Hz)

165 Hz VRR (100 Hz native)

VESA Veggfestingarst.

300 x 200

Andspeglun

Já

Art Mode

Já

Optical

Já

Tækjamál HxBxD (cm)

122 x 71 x 3.9

Skjástærðir

55" – 65"