Airforce Spanhelluborð Innova Artis Plus Petra 60 F Matt
AIRAF000017
Glæsilegt og öflugt spanhelluborð frá Airforce með innbyggðum gufugleypir og sameinar þannig tvö eldhústæki í eitt. Helluborðið er með samtengjanlegum hellum, ZeroMoisture“ og með aðgerð til að halda heitu. Njóttu þess að elda kvöldmatinn á þessu frábæra helluborði og það án þess að vera með gufugleypirinn hangandi yfir höfðinu á þér.
279.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Helluborðið er með fjórum hellum sem allar verða 21 cm að stærð. Hægt er að sameina tvær hellur í eina sé þörf á stærra eldunnarsvæði.
Samtengjanlegar hellur
Bridge virknin gerir þér kleift að tengja saman tvær hellur til að búa til
stærra eldunarsvæði fyrir stóra potta og/eða pönnur.
Stjórnborð
Sleðatakki sem er auðveldur og þægilegur í notkun. Þú velur hvaða
hellu þú ætlar að nota og stillir hitastigið síðan með því að renna fingrinum
eftir sleðatakkanum.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími
er liðinn.
Boostervirkni
Bætir aukakrafti við eldunarsvæðin, í takmarkaðan tíma. Tilvalið þegar þarf að
snöggsteikja eða ná upp suðu.
Halda heitu
„Warming Function“ aðgerðin heldur hita á matnum án þess að hann brennist
eða haldi áfram að eldast.
Afsakið hlé
Pásutakkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Eftirhitagaumljós
Logar á meðan þær hellur er notaðar voru eru að kæla sig niður. Þannig
forðastu hættuna á bruna fyrir slysni eða getur notað afgangshitann til að
halda matnum heitum.
Sjálfvirk öryggisslökkvun
Helluborðið slekkur sjálfkrafa á sér eftir ákveðin tíma.
Barnalæsing
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni. Það er ekki hægt að byrja að elda fyrr en slökkt hefur verið á barnalæsingunni.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, bingó, gengur á spanhellur. Gakktu úr skugga um að botninn á eldunarílátinu sé hreinn og þurr áður en það er sett
á helluborðið. Til að forðast rispur skaltu ekki renna eða nudda eldunarílátinu
á helluborðinu.
Umhirða og hreinsun
Hreinsaðu helluborðið reglulega til þess að yfirborðsefnin á því endist
betur. Slökktu á helluborðinu og láttu það kólna fyrir hreinsun. Hreinsaðu það
með mjúkum rökum klút. Notaðu aðeins hlutlaus og/eða þar til gerð hreinsiefni.
Ekki nota stálull, leysiefni eða málmhluti, nema annað sé tekið fram.
Innbyggð vifta
Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan sýgur gufu og lykt beint af hellunni svo það verði alltaf
hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.
„Zero-Moisture“ kerfi
Eftir að hafa slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á
lægstu hraðastillingu í 20 mínútur, til þess að tryggja uppgufun á þeim raka
sem eftir verður þegar eldamennski er lokið.
Kolafilter
Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti.
Viftan lætur vita þegar þarf að skipta um kolafilter og lætur einnig vita þegar
þrífa þarf fitufilterið..
Og svo hitt
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og í þeim tilfellum þarf því að hafa samband við fagaðila.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 25 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 65 × 75 × 50 cm |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Vörumerki | AIRFORCE |
| Litur | Svartur |
| Gerð / Sería | Niðurfellanlegt |
| Tegund | Spanhelluborð með viftu |
| Wött (W) | 7400 |
| Hella aftari hægri, w/mm | 2100/300W/190/210mm |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 2100/300W/190/210mm |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hella fremri hægri, w/mm | 2100/300W/190/210mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 2100/300W/190/210mm |
| Hægt að tengja saman hellur | Já |
| Hob2Hood | Nei |
| Hægt að halda heitu | Já |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Nei |
| Tímastillir | Já |
| Hella fyrir miðju w/mm | Á ekki við |
| Kolafilter fylgir með | Já |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 21 x 60 x 52 |
| Gatmál BxD (cm) | 56,2 x 49 |
| Orkumerking | A+ |
| Lengd kapals | 1,5 |
| Hljóðstyrkur (dBA) | 39/70 dB (A) |
| OptiHeat | Nei |
| Útskurðarradíus | Vantar upplýsingar |
| Sogafköst mest (m3/klst) | 570m3/klst |
