Sonos Play Svartur
ETW129320350
Vantar þig ferðafélaga í útileguna, sumarbústaðinn
eða bara í ferðalagið? Þá getur þú hætt að leita en þráðlausi Play
ferðahátalarinn frá Sonos er fullkomin ferðafélagi. Hann er með allt að 24
klukkutíma rafhlöðuendingu, raddstýringu og ótrúlegum hljómgæðum til að spila
uppáhalds tónlistina þína. Ef svo ótrúlega vill til að þessi fullkomni ferðafélagi
taki upp á því að vera með leiðindi … þá getur þú bara slökkt á honum.
59.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Bluetooth
Þú getur tengt hátalarann við símann eða tölvuna þína og
byrjað að spila en þessi frábæri hátalari er einmitt með Bluetooth tengingu.
Raddstýring
Ertu að vinna út í garði, puttarnir óhreinir og þú villt hækka í hátalaranum?
Ekkert mál, þú einfaldlega notar röddina til að biðja hann um að hækka og færð
svar til baka um að skipunin hafi verið móttekin.
TruePlay
Já sæll, þessi hátalari er með ótrúlega aðlögunarhæfni og getur greint
hljóðeiginleika umhverfisins og jafnað hljóminn þannig að hann passi fullkomlega
við umhverfið. Þú getur líka stillt hann handvirkt til að aðlaga hann að t.d.
fleiri en einu herbergi.
Paraðu
Þú getur notið tónlistarinnar mun betur með því að tengja saman tvo
hátalara og fengið þannig hinn fullkomna steríóhljóm.
Spilunartími
Þessi hátalari er með allt að 24 klukkutíma spilunartíma.
Vatn og ryk
Hátalarinn er með IP67-vottun og því varinn gegn ryki og vatni og því
hentugur til að taka með á ströndina.
Gríptu með
Auðvelt að grípa með sér hvert sem er en þess netta hönnun fer vel í hendi
og ég tala nú ekki um í bakpokanum.
Og svo hitt
Eigum við eitthvað að tala um hvað þessi hátalari er frábær.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 2,23 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 14,2 × 15,2 × 24,4 cm |
| Vörumerki | Sonos |
| Litur | Svartur |
| Þyngd (kg) | 1,312 |
| Bluetooth | Já |
| Raddstýring | Já |
| WiFi staðall | Wi-Fi 6 (802,11ax) |
| Wi-Fi stýring möguleg | Já, Wi-Fi 6 |
| Fjöldi USB-C | 1 |
| Tegund rafhlöðu | Lithium-ion |
| Bluetooth útgáfa | 5,3 |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 19,22 x 11,25 x 7,67 |
| Hleðslustöð | Já |
| Apple AirPlay 2 | Já |
| Strikamerki | 8720862503786 |
| IP Staðall | 67 |
| Tónjafnari | TruePlay-tuning |













