Samsung Þvottavél/Þurrkari 11kg/6kg Sambyggð Svartur
SAWD11DG5B15BBEE
WD11DG5B1 er hágæða sambyggð þvottavél og
þurrkari frá Samsung, sem sameinar mikla afkastagetu og snjalla tækni. Hún fer
vel með þvottinn þinn og er með EcoBubble, AirWash og fjölda annara sniðugra eiginleika
Sparaðu plássið og njóttu þess að þvo og þurrka í sama tækinu án fyrirhafnar.
159.990 kr.
Á lager
Upplýsingar
Meira
pláss
Með Space Max tækni Samsung voru veggir vélarinnar og öll innri
hönnun hennar endurhannað til þess að rúma stærri tromlu. Space Max tæknin frá
Samsung gerir innra rými vélarinnar stærra án þess að það verði
fyrirferðarmeira.
Snjallstjórnun
Hægt er að tengja
þvottavélina við snjallsíma og nýta sér SmartThings appið til að nota alla þá
möguleika sem þvottavélin hefur upp á að bjóða, t.d.
getur þvottavélin látið þig vita í símann þegar hún er búin að þvo.
Snjöll rútína
Gerir þér
mögulegt að tengja þvottavélina við önnur snjalltæki á heimilinu. T.d.blikka
snjallperur í stofunni þegar hún er búin að þvo.
Snjallt viðhald
Gerir alla umhirðu þvottavélarinnar mun auðveldari en SmartThings Home Care
lætur þig vita þegar þarf að skipta um hluti og hjálpar til við að leysa
vandamál. Það sýnir þér einnig hvernig á að uppfæra hugbúnað fyrir þjónustu og
tæki. Og það gefur þér gagnleg ráð um hvernig á að nota þvottavélina þína.
Snjall orkusparnaður
Viltu stjórna þinni orkunotkun? SmartThings Energy veitir ráðgjöf um
orkusparnað og einnig getur það fylgist með orkunotkun á heimilistækjum. Þannig sparar þú peninga
og jafnframt minnkar þú kolefnissporið þitt.
Tímstillt ræsing
Hægt er að seinka ræsingu ef óskað er eftir því að vélin
klári að þvo á einhverjum ákveðnum tíma t.d. um það leyti þegar farið er á
fætur.
EcoBubble tækni
Þvoðu þvottinn þinn á skilvirkan hátt með minni orku, tíma og fyrirhöfn.
Eco Bubble tryggir kraftmikinn en þó mildan þvott við lágan hita. Þvottaefnið
leysist upp, breytist í loftbólur og smýgur þannig mun betur og fyrr inn í
efnið. EcoBubble leysir þannig betur upp óhreinindi og bletti svo auðveldar sé
að þvo þá en verndar jafnframt liti og áferð þvottsins.
Sápuhólfið
Er með þremur hólfum, fyrir forþvott, aðalþvott og mýkingarefni. Auðvelt er
að taka það úr og þrífa.
Þvottakerfin
Þvottavélin er með öll helstu þvottakerfin eins og orkusparnaðarkerfi,
bómullarkerfi, kerfi fyrir viðkvæman þvott og gerfiefni. Stutt kerfi fyrir
lítinn þvott og ullarkerfi þar sem þvotti er vaggað í litlu vatnsmagni, ásamt
þurrkkerfi.
Minni örtrefjar
Þvottakerfið
„minni örtrefjar“ sem Samsung hannaði dregur úr losun örplasts um allt að 54%
AirWash tæknin
Fjarlægir vonda lykt úr
þvottinum þínum þannig að hann lyktar alltaf eins og nýþveginn. Fjarlægir líka
allt að 99,9% af bakteríum með aðeins upphituðu lofti engu vatni eða
þvottaefni.
Hreinlætisgufa
Fjarlægir ofnæmisvalda og 99,9% af bakteríum. Gufan losnar úr neðri hluta
tromlunnar og tryggir þannig að hver flík sé rétt hreinsuð.
Leggja í bleyti
Leggja í bleyti „Bubble Soak“ hjálpar þér að losna við „þrjóska“ bletti
eins og grasgrænu, kaffi og farða. Þvotturinn liggur í bleyti í ca 30 mínútur
áður en þvottavélin byrjar að þvo með völdu þvottakerfi.
Tromluþvottur+
„Drum
Clean+“ fjarlægir óhreinindi og 99,9% af bakteríum sem orsaka vonda lykt í
tromlunni og fjarlægir um leið óhreinindi í kringum hurðargúmmíið. Minnir þig á
þegar tími er komin á tromluþvott.
Þurrkarinn
Er barkalaus með rakaskynjara. Vatn og ló sem kemur frá þurrkaranum fer út
með affallinu frá þvottavélinni.
Digital Inverter
tækni
Þessi hljóðláti
og slitsterki mótor notar segla í stað bursta og hefur færri hreyfanlega hluta,
sem þýðir minni viðhaldskostnað og lengri endingu.
Flutningsfestingar
Mundu eftir því að
fjarlæga flutningsfestingar áður en þú byrjar að nota þvottavélina. Fjöldi flutningsbolta
getur verið mismunandi eftir gerð og tegund.
Run Calibration
Ráðlagt er að keyra „Run Calibration“ áður en byrjað er að nota vélina.
Þessi aðgerð tryggir nákvæma þyngdargreiningu þvottavélarinnar.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og
gera hana enn hljóðlátari.
Viðhald
Hafa ber í huga að hreinsa þarf allar þvottavélar reglulega. Heitt og
rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill fá í
þvottinn sinn. Þvottavélin er með sérstökum tromluþvotti til að losa þig við
slík vandamál.
Og svo hitt
Þessi vél er frábær valkostur þar sem ekki er pláss fyrir tvö tæki.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 74 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 60 × 60 × 85 cm |
| Vörumerki | SAMSUNG |
| Orkumerking | D |
| Litur | Svartur |
| Þyngd (kg) | 74 |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Gerð / Sería | Þvottavél með þurrkara |
| Snúningshraði (per mín) | 1400 |
| Tímastýrð ræsing | Já |
| Sería | Sería 5 |
| Hurðaropnun (cm) | 33 |
| Vatnsnotkun (L) | 54 |
| Barnalæsing | Já |
| WiFi | Já |
| Sýnir eftirstöðvar tíma | Já |
| Kolalaus mótor | Já |
| Þurrkgeta (kg) | 6 |
| Tími á ECO Þvottakerfi (klst:m) | 4:00 |
| Tromla (L) | 71 |
| Ullarkerfi | Já |
| Þvottageta (kg) | 11 |
| Tími hraðkerfis (mín) | 15 mín |
| Barkalaus | Já |
| Hurðarlöm | Vinstra megin, EKKI hægt að breyta |
| Varmadælutækni | Já |
| Hljóðflokkur | 72 dB (A) |
| Krumpuvörn | Já |
| Rakaskynjari | Já |
| Tímaval | Já |
| Öryggi (amp) | 10 |
| Þurrkhæfni | B |
| Afgangsraki eftir vindu | 53,9 |
| Orkunýtni á 100 lotur | 308 kWh (þvottur og þurrkun) |
| Sjálfvirkur sápuskammtari | Nei |
| Hitastilling | Já, kalt til 90°C |
| Ljós í tromlu | Nei |
| Gufukerfi | Já, sótthreinsandi gufa |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 85 x 60 x 63,3 |
| Vatnsöryggi | Já |
| Frárennslislanga (cm) | Já |
| Vatnsslanga (cm) | 1,5 m |
| Skógrind | Nei |











