SAMSUNG ÞURRKARI 9KG SVARTUR
SAMSUNG ÞURRKARI 9KG SVARTUR
- Taumagn: 9 kg
- Varmadæla
- Hraðþurrkun
- Kolalaus mótor
BARKALAUS MEÐ ÞÉTTIBÚNAÐI
- Netverslun
- Akureyri
- Ormsson Lágmúla
Samsung barkalaus þurrkari með varmadælutækni. Varmadælutæknin lækkar orkunotkunina umtalsvert, þurrkar á lægra hitastigi og fer þar af leiðandi betur með tauið og veskið. Með rakaskynjara sem skila árangursríkari þurrkun og tekur 9 kg mest. Stórt hurðarop og hurðarlöm sem er hægra megin en hægt er að breyta opnun. Breytir gufu í vatn og dælir því upp í tank sem er auðvelt er að tæma, en affalsslanga fylgir með og því einnig hægt að tengja við niðurfall. Skjár er sýnir tíma og hann er með diamond tromlu sem dregur dregur úr krumpun og sliti á taui. Tvöfalt lósigti, engin þörf á sigti við þéttibúnað. Fjöldi þurrkkerfa t.d. handklæði, ull, rúmföt, fínþvottur, skyrtur, blandaður þvottur, sótthreinsandi kerfi, tímaþurrkun og viðrun með heitu lofti sem fjarlægir óæskilega lykt (AirWash). QuickDry“ hraðkerfi aðeins 35 mínutur fyrir lítið magn af taui og Hægt er að velja um þrjú þurrkstig, þurrt, meðal þurrt, strauþurrt. Krumpuvörn, veltir tromlu af og til eftir þurrkun. Hljóðmerki sem minnir á að þurrkun sé lokið. Ljós í tromlu og barnalæsing. Smart Check sjálfvirk bilanaleitun, (snjallsíma app). Hægt að stilla fram í tímann, allt að 24 tímum. Áminning um losun vatnstank, hreinsun sigtis og þéttibúnað. Sjálfvirk slökkvun ef gleymist að slökkva á þurrkaranum, dregur úr orkunotkun.