Upplýsingar

Einstök
hönnun
Þessi einstaka og geggjaða hönnun gefur Music Studio 5 fágað yfirbragð, en
markmið hönnunarinnar er að láta tækið líta út sem listræna hönnun frekar en
rafmagnstæki og falla þannig fullkomlega inn á nútíma heimili.

Þráðlaus
Með innbyggðum stuðningi fyrir Wi-Fi og Bluetooth tengist Music Studio 5 auðveldlega
við hinar ýmsu streymisþjónustur, eins og Spotify, svo að þú getir notið þess
að hlusta á öll uppáhaldslögin þín.

Hljóð
Music Studio 5 er hannað til að sameina hljóð, list og auðga heimilið þitt
bæði sjónrænt og hljóðrænt. Með Al Dynamic Bass Control frá Samsung og nákvæmum
bylgjuleiðurum skilar það skýru og fullkomnu hljóði með dýpt sem fyllir
herbergið af lifandi hljóði.

Dolby Atmos
Með lagskiptu hljóði og skarpari smáatriðum skapast fyllri og raunverulegri
hljóðheimur sem bætir við meiri dýpt og fullkomleika í hlustunarupplifun þína.

Eclipsa Audio
Er þvívíddarhljóðtækni sem skilar kraftmiklu og enn fullkomnara hljóðumhverfi
en áður.

Q-Symphony
Greinir og skynjar sjálfkrafa hvar sjónvarpið og Music Studio 5
hátalararnir eru staðsettir, kvarðar og samstillir þá til að hámarka afköst um
allt herbergið. Já og það fyrir allt að fimm hátalara.

Sjálfvirkur hljóðstyrkur
Heldur hljóðstyrknum jöfnum og stuðlar að jafnvægi á milli mismunandi
efnisgjafa með því að greina bakgrunnshljóð. Enginn skyndilegur
hljóðstyrksmunur lengur, bara þægileg hljóðupplifun þegar þú skiptir frá því að
hlusta á tónlist yfir í að horfa á fótboltaleik.

Hljóðtækni
Njóttu stórkostlegrar hljóðupplifunar með SpaceFit Sound Pro. Þessi
eiginleiki greinir rýmið og aðlagar hljóðið í samræmi við það. Fínstillir
jafnvel bassann, fyrir hámarks skýrleika og upplifun.

Engin truflun
Upplifðu skýrari samræður með virka raddmagnaranum (AVA) Pro. Hann hlustar
eftir truflunum, greinir hávaða og magnar síðan upp raddir svo talið sé skýrt
og auðvelt sé að hlusta á það.

Tónlist um allt hús
Group Play tengir Music Studio 5 þráðlaust saman við aðra hátalara í sama kerfi.
Tengdu allt að 10 hátalara saman og njóttu öflugs, sameiginlegs hljóðs um allt
hús.  

Tvöfalt hljóð, tvöföld upplifun
Með Stereo Play getur þú tengt sama tvær einingar af Music Studio 5 og
þannig skapað frábæra og ótrúlega hljóðupplifun.

SmartThings
Appið tengir tækin þín saman og býr til sameinað kerfi sem einfaldar
daglegt líf þitt.

Spotify
Streymdu
tónlistinni beint frá Spotify appinu yfir í hátalarann.

Raddstýring
Njóttu
þægindanna og stjórnaðu hátalaranum þínum með röddinni.

Og svo hitt
Með þessum hátalara getur þú notið besta hljóðsins í hvaða rými eða
umhverfi sem er.

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 3,6 kg
Ummál pakkningar 16,4 × 29 × 35,5 cm
Vörumerki

SAMSUNG

Litur

Hvítur

Þyngd (kg)

2,4

Bluetooth

Já

Dolby Atmos

Já

Gerð / Sería

Þráðlaus hátalari

WiFi

Já, Smart Things

Bluetooth útgáfa

6.0

Dolby Digital Plus

Já

Fjöldi hátalara

3

Spotify Connect

Já

Optical

Já

Q-Symphony

Já

Tækjamál HxBxD (cm)

28,3 x 25,1 x 13,7

Fylgir með

Já

Sérstakir eiginleikar

Já

AirPlay

Já

Sérstakir eiginleikar

Já

LPCM

Já, 2

Fjöldi rása

2

Raddmagnari (AVA)

Já

Dolby 5.1

Já

Næturstilling

Já

Space Fit

Já