Upplýsingar

Samsung tvöfaldur kæliskápur með vatns- og klakavél. Kæliskápurinn er með nútíma hönnun og yfirborði sem auðvelt er að þrífa. Stálið skapar óaðfinnanlegt útlit og gefur kæliskápnum lúxusyfirbragð. Gefðu eldhúsinu þínu heimilislegt og glæsilegt yfirbragð með þessum fallega kæliskáp.



Kæliskápurinn

Er með 330 lítra rúmmáli, þremur hillum og tveimur skúffum fyrir grænmeti. Að auki er mikið og gott geymslupláss í hurðum kæliskápsins.



Frystirinn

Er með 165 lítra rúmmáli, tveimur skúffum og boxi fyrir klakann.



Twin Cooling Plus

Tvö aðskilin kælikerfi sem tryggja ferskleika án þess að lofti úr frysti sé blandað í kæli og öfugt. Þannig haldast ávextirnir þínir ferskir. Ísinn í frystinum hélar ekki og klakarnir fá ekki keim af hvítlauk.



Nettengjanlegur

Hægt er að tengja kæliskápinn við snjallsíma og nýta sér SmartThings appið til að nota til fullustu þá möguleika sem kæliskápurinn hefur upp á að bjóða.



Digital Inverter Tækni

Pressunni í kæliskápnun er stjórnað með stafrænni tækni sem minnkar álagið á hana þar sem hún stillir sjálfkrafa hraða sinn. Hún sparar orku, lengir endingartíma sinn og lækkar hljóð.



Klakinn

Safnast í box sem er í frystihluta kæliskápsins og því er handhægt og þægilegt að fá sér klaka til að setja í drykkinn þinn. Klakavélin er beintengt við vatn.



Vatnið

Þegar þorstinn sækir að er einfalt og þægilegt að fá sér ískalt vatnsglas til að svala honum. Vatnsvélin er ekki beintengt við vatn heldur er tankur sem þarf að fylla á eftir þörfum.



Stjórnborð



Inni í tækinu finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið á einfaldan máta. Innbyggði skjárinn sýnir þér hvaða kælistig er í skápnum.



Hraðkæling

Tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður í ákveðin tíma og eftir það fer kælirinn aftur í fyrri stillingu.



Hraðfrysting

Tryggir að hægt er að frysta mikið magn af mat á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar frystistigið niður í ákveðin tíma og eftir það fer frystirinn aftur í fyrri stillingu.



NoFrost

Eða sjálfvirk afhríming tryggir að kæliskápurinn hleður ekki inn á sig klaka og því þarf ekki að affrysta hann. Þannig sparar þú bæði tíma og fyrirhöfn.



MultiFlow

Jöfn dreifing á blæstrinum í öllum hillurýmum kæliskápsins.



Lýsing

Með LED lýsingu sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Hurðarviðvörun

Kæliskápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.



Og svo hitt

Tímalaus einföld og glæsileg hönnun


Eiginleikar

Þyngd pakkningar 110 kg
Ummál pakkningar 77 × 88 × 190 cm