Upplýsingar
Upplifðu OLED með djúpum svörtum og afbragðs dýpt sem
undirstrikar öll smáatriði. Þökk sé Glare Free tækninni okkar þarft þú ekki að
eiga við truflandi endurkast, jafnvel í björtum herbergjum
Upplifðu okkar bestu OLED tækni með fullkomnum, djúpum
svörtum, afbragðs dýpt og framúrskarandi nákvæmni. Þökk sé Glare Free tækninni
þarft þú ekki að eiga við truflandi endurkast, jafnvel í björtum herbergjum.
Þunna hönnunin bætir stílhreinu og fáguðu útliti við hvaða rými sem er. Fyrir
tölvuleiki afkastar sjónvarpið mjúkum og snörpum 165 Hz og styður G-Sync se mog
FreeSync. Þróaði gervigreindar örgjörvinn tekur svo íþróttir á nýtt stig. Með
einföldum raddskipunum geturðu beðið sjónvarpið um að slökkva á kynninum á
boltaleik og valið hvernig upplifun þú vilt eiga.
Vision AI Companion
Með Samsung gervigreindinni getur þú til að mynda
beðið sjónvarpið að lækka sérstaklega í kynninum á boltaleik, fengið
uppástungur að áfangastöðum eða jafnvel uppskriftir til að heilla gesti. Svörin
skila sér beint upp á stóra skjáinn með viðeigandi myndbands- eða myndefni. Þar
að auki sér gervigreindar örgjörvinn um að stilla mynd- og hljóðstillingar að
bestu mögulegu upplifun miðað við efnið sem er í gangi.*
*Samskipti við gervigreindina eru á ensku. Eiginleikar geta
breyst með tímanum og milli sjónvarpa. Samsung reikningur
nauðsynlegur.
Pantone Validated
Litir sem þú getur treyst, með Pantone vottun eru
2140 Pantone litir og 110 húðlitir endurskapaðir með nákvæmni. Þetta
þýðir raunverulegri blæbrigði, húðlitir og heilt yfir mynd sem
endurspeglar raunveruleikann. Sem heimsins fyrsti sjónvarps framleiðandinn
til að fá Pantone vottun setjum við nýjan staðal fyrir litanákvæmni
inn á heimilum.
AI Motion Enhancer Pro
Gervigreindar hreyfimyndabestunin metur hreyfingu í rauntíma
til að tryggja að hröð atriði verði mýkri og skýrari. Boltinn í
leiknum, leikmenn á hreyfingu, eða bara texti á skjánum verður mýkri og bætir
innlifun, sérstaklega í hasarmyndum eða leikjum og íþróttum.
NQ4 AI Gen3 Processor
Þróaði örgjörvinn notar gervigreind til að bæta bæði mynd og
hljóð í rauntíma. Örgjörvinn sinnir uppskölun með 128 tauganetum, efni á lægri
upplausn er skalað upp og nálgast 4K myndgæði. Hvort
sem um er að ræða leiki, íþróttir eða þætti þá
er upplifuninni sérsniðin til að auka skarpleikann.
OLED HDR Pro
Uppgötvaðu sönnu fegurð hverrar senu, alveg eins og leikstjóri
ætlaði sér. Með framúrskarandi OLED HDR Pro afhjúpum við björtustu OLED
perurnar okkar til þessa. Með óaðfinnanlegum svörtum og merkilegri breidd sem
dregur þig inn í myndina.
Q-Symphony
Með Q-Symphony samtengingu eru sjónvarpshátlarar í
studdum Samsung sjónvörpum samnýttir með studdum Samsung hljóðstöngum.
Þar sem venja er að slökkva á sjónvarpshátölurum þegar hljóðstangir eru
tengdar. Þetta bíður ríkari og dýpri hljóðheim og innlifun, þar sem sjónvarpshátlarar bætast
inn í Atmos hljóðrásina.*
*Athugaðu vel að hljómtækið þitt styðji Q-Symphony.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 46 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 18 × 188 × 115 cm |
| Framleiðandi | Samsung |
| Skjástærð (″) | 77 |
| Skjástærðir | 75" – 85" |









