Upplýsingar
Upplifðu sjónvarp framtíðarinnar með Micro RGB tækni.
Agnarsmáir rauðir, grænir og bláir ljósgjafar, minni en 100 míkrómetrar, skapa
mynd með afbragðs nákvæmni. Þú munt njóta bjartari lita og hærra birtustigs
en nokkru sinni fyrr á Samsung sjónvarpi. Glampalaus tækni
dregur úr endurkasti svo þú njótir háskerpu og djúpra skugga óháð
birtuskilyrðum. Á sama tíma sinnir þróaði gervigreindar örgjörvinn bæði
myndvinnslu og hljóðblöndun, allt frá fótboltaleikjum að hasarmyndum upp á
næsta stig. Öllu þessu er pakkað saman í næfurþunna hönnun sem lítur út fyrir
að hanga fljótandi yfir standinum.
Micro RGB Technology
Örljósgjafar vinna með staðbundinni lýsingu til að stjórna
bæði lit og birtustigi. Rauða, græna og bláa ljósinu er stjórnað sér með hárri
nákvæmni til að skila afbragðs skerpu og raunverulegum litum.
Micro RGB AI Engine Pro
Tækið er útbúið með öflugum örgjörva sem stjórnar
baklýsingunni sérstaklega fyrir hvern grunnlit, tæknin bíður upp á þrefalt
hærri nákvæmni en fyrri týpur. Með gervigreind geta litir og birtustig verið
bestuð í rauntíma til að skila sláandi nákvæmni og skarpri mynd.
Micro RGB Precision Color 100
Háþróuð tækni örlitaperanna afkastar í fyrsta sinn á
heimsvísu 100% nýtingu af BT.2020 Wide Color Gamut staðlinum.
Tæknin hefur fengið fyrstu Micro RGB Precision Color vottunina
frá VDE, sem tryggir að litir séu endurskapaðir með hárfínni nákvæmni og
stjórn. Þetta skilar upplifun sem er vart greinanleg frá raunveruleikanum.*
*Þessi vara var metin í samræmi við VDE vottunarstaðla
sem byggja á UHD (4K) litastaðlinum BT.2020 frá ITU International Telecommunication Union,
og er vottað fyrir “Micro RGB Precision Color”.
Vision AI Companion
Með Samsung gervigreindinni getur þú til að mynda
beðið sjónvarpið að lækka sérstaklega í kynninum á boltaleik, fengið
uppástungur að áfangastöðum eða jafnvel uppskriftir til að heilla gesti. Svörin
skila sér beint upp á stóra skjáinn með viðeigandi myndbands- eða myndefni. Þar
að auki sér gervigreindar örgjörvinn um að stilla mynd- og hljóðstillingar að
bestu mögulegu upplifun miðað við efnið sem er í gangi.*
*Samskipti við gervigreindina eru á ensku. Eiginleikar geta
breyst með tímanum og milli sjónvarpa. Samsung reikningur
nauðsynlegur.
AI Sound Controller Pro
Hlustaðu á það sem þú vilt heyra, án þess að hækka
hljóðið. AI Pro hljóðstjórnunin skiptir hljóði upp í þrjár
rásir, raddir, tónlist og hljóðbrellur, þú getur svo valið hve hátt þú vilt að
heyrist í hverju fyrir sig. Hækkaðu sérstaklega í talmáli, lækkaðu í tónlist og
afgreiddu það allt með raddstjórnun! Þú hefur fulla stjórn yfir hljóðheiminum
öllum.
*Virkni og aðgangur háður því hvernig forrit er notað til að birta efni.
AI Football Mode Pro
Fylgstu með leiknum eins og þú sért á staðnum. Þegar
leikur ræsist aðlagar sjónvarpið sjálfkrafa bæði hljóð og mynd án þinnar
aðkomu. Leikmenn verða skýrari jafnvel á mikilli hreyfingu, litir verða
bjartari og hljóðið jafnað svo þú heyrir bæði í klappliðinu og kynnum.
*Virkni og aðgangur háður því hvernig forrit er notað til að
horfa á leikinn.
4K AI Upscaling Pro
4K AI Pro uppskölunin notar 128 AI tauganet
til að skoða og betrumbæta efni í rauntíma. Efni á lægri upplausn er bætt og
smáatriði dregin fram, skarpleiki og mýkri afspilun færa jafnvel gamlar
bíómyndir og HD útsendingar nálægt 4K upplifun. Úr verður
skýrari mynd óháð útsendingu. *
*Uppskölun virkar ekki með PC tölvum eða í “Game Mode”,
skilvirkni getur verið breytileg.
AI Motion Enhancer Pro
Gervigreindar hreyfimyndabestunin metur hreyfingu í rauntíma
til að tryggja að hröð atriði verði mýkri og skýrari. Boltin í
leiknum, leikmenn á hreyfingu, eða bara texti á skjánum verður mýkri og bætir
innlifun, sérstaklega í hasarmyndum eða leikjum og íþróttum.
Motion Xcelerator 165Hz (DLG Up to 2K 240Hz)
Motion Xcelerator 165Hz skilar þér mýkri
hreyfingum jafnvel í örustu senum/leikjum. Kerfið styður allt að 4K upplausn
á 165Hz sem og DLG upp að 2K 240Hz, þú færð
afbragðs rammatíðni, hærri skarpleiki á örum hreyfingum og skilvirkari
leikjaupplifun. Í takt við háa endurnýjunartíðni eru hikst og rof á
myndefni minnkuð svo að allar hreyfingar séu nákvæmar.*
*4K 165Hz er eingöngu fáanlegt í sérvöldum PC leikjum
sem styðja slíka tíðni (Skjákort sem styður slíka tíðni einnig
þarft). Aðgangur að 2K 240Hz getur verið breytilegur eftir
skjástærð og tengingu. Afköst geta verið misjöfn.
FreeSync Premium Pro
Með AMD FreeSync™ Premium Pro er
endurnýjunartíðni sjónvarpsins samræmd við skjákort sem styður FreeSync™
til að minnka hikst og bresti í myndefni. Niðurstaðan er mýkri
hreyfingar, stöðugri afspilun og hærri snerpu, jafnvel
þegar spilað er á HDR. Þú færð bæði mýkri frammistöðu og
kraftmikil afköst.*
Q-Symphony
Með Q-Symphony samtengingu eru sjónvarpshátlarar í
studdum Samsung sjónvörpum samnýttir með studdum Samsung hljóðstöngum.
Þar sem venja er að slökkva á sjónvarpshátölurum þegar hljóðstangir eru
tengdar. Þetta bíður ríkari og dýpri hljóðheim og innlifun, þar sem sjónvarpshátlarar bætast
inn í Atmos hljóðrásina.*
*Athugaðu vel að hljómtækið þitt styðji Q-Symphony.
Eiginleikar
| Framleiðandi | Samsung |
|---|---|
| Skjástærð (″) | 75 |
| Skjástærðir | 75" – 85" |









