Roborock Q8 Max - Svört
ROQ8MAX
Roborock Q8 Max ryksuguvélmennið er með PreciSense LiDAR tækni sem bregst við hindrunum á heimilinu. Með DuoRoller burstum fyrir ítarlegri þrif. Það er einnig með góðu moppukerfi
sem hreinsar bletti á auðveldan máta. Kemur í fallegum svörtum lit.
Original price was: 69.900 kr..49.990 kr.Current price is: 49.990 kr..
Á lager
Upplýsingar
Ryksugar …
Q8 Max er með 5500 Pa sogkraft og fjarlægir því auðveldlega alls kyns óhreinindi af hvaða gólfefni sem er, jafnvel teppum og
mottum.
… og moppar
Hægt er að velja um hversu mikið vatn Q8 Max notar þegar hún moppar. Fer létt með
hina ýmsu bletti eins kaffi, mjólk eða skítug fótspor.
Tvöfaldur bursti
Q8 Max er með tvöföldum bursta sem tryggir enn dýpri og betri hreinsun. Þeir koma einnig í veg fyrir flækjur og hreinsa gæludýrahár
upp á auðveldan máta.
PreciSense LiDAR
Þökk sé kerfinu þá skannar Q8 Max ryksuguvélmennið heimili þitt og býr til ítarleg kort til að finna bestu hreinsunarleiðina. Ef húsið þitt er á nokkrum hæðum man Q8 Max hvernig á að bera kennsl á hverja og
eina þeirra.
Reactive tækni
Notar mismunandi skynjara til þess að hjálpa Q8 Max til að reikna út vegalengdir
og forðast hindranir sem geta verið á leið þess.
Hleðslustöð
Ryksuguvélmennið kemur með hleðslustöð þannig að e rafhlaðan er að klárast
í miðju verki þá fer ryksugan „heim“, hleður sig og klárar síðan sína vinnu.
Teppi og mottur
Q8 Max áttar sig á því þegar farið er yfir teppi eða mottu og stillir sogkraftinn í samræmi við það.
Stopp!
Settu upp bannsvæði og ósýnilega veggi til að verja viðkvæm húsgögn og aðra muni. Q8 Max finnur einnig sjálfkrafa staði þar sem er auðvelt fyrir ryksuguvélmenni að festast á og stingur upp á
því sem bannsvæði.
Raddstýring
Þú getur stjórnað ryksuguvélmenninu þínu með röddinni þar sem hún er
samhæfð við Google Home, Alexa og Siri.
Barnalæsing
Kemur í veg fyrir að börn og/eða gæludýr geti startað ryksuguvélmenninu.
Og svo hitt
Q8 Max er einmitt ryksuguvélmennið sem þig vantar.
Eiginleikar
| Vörumerki | ROBOROCK |
|---|---|
| Litur | Svartur |
| Þyngd (kg) | 3,6 |
| Afl rafhlöðu (mAh) | 5200 |
| Ending rafhlöðu (mín) | 240 |
| Tegund rafhlöðu | Lithiun-ion |
| Fylgihlutir | 7 |
| Gerð / Sería | Ryksuguvélmenni með moppu |
| Stærð Vatnstanks (L) | 0,350 |
| Hljóðstyrkur (dBA) | 67 dB |
| Sjálfvirk tæmingarstöð | Nei |
| Filter | Hepa |
| Stærð ryktanks (ml) | 470 |
| Tímastýrð ræsing | Já |
| WiFi | Já, Roborock appið |
| Hleðslutími | 6 klukkutímar |
| Sogkraftur | 5.500 Pa |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 35 x 35.3 x 9.6 |
| Hleðslustöð | Já |



