Upplýsingar

PULSE Explore™ – Þráðlaus in-ear heyrnartól fyrir PlayStation

PULSE Explore™ eru þráðlaus in-ear heyrnartól frá Sony sem eru hönnuð fyrir spilun á PlayStation 5. Þau skila nákvæmu og kraftmiklu hljóði sem dregur þig dýpra inn í leikinn, hvort sem þú ert í spennandi hasar eða rólegri stemningu.

Heyrnartólin styðja PlayStation Link fyrir stöðuga og hraðvirka tengingu við PS5 og PlayStation Portal, og geta jafnframt tengst snjalltækjum í gegnum Bluetooth. Þú getur því verið í spilun og samt haldið tengingu við símann á sama tíma.

Helstu eiginleikar

  • Þráðlaus PlayStation Link tenging með lágri töf

  • Bluetooth tenging við snjallsíma og önnur tæki

  • Tenging við PS5/Portal og síma

  • Innbyggður hljóðnemi fyrir skýr samskipti

  • Þægileg in-ear hönnun með hleðsluboxi

Eiginleikar