Upplýsingar

PS5 standurinn gerir þér kleift að staðsetja PlayStation 5 leikjatölvuna þína lóðrétt á öruggan og glæsilegan hátt. Standurinn er hannaður af Sony til að passa fullkomlega við útlit og hönnun leikjatölvunnar og veitir aukinn stöðugleika á borði eða sjónvarpsskáp.

Lóðrétt uppsetning hjálpar til við að nýta plássið betur og gefur leikjaumhverfinu snyrtilegt og nútímalegt útlit. Standurinn er einfaldur í uppsetningu og er sérhannaður fyrir PlayStation 5 Slim leikjatölvurnar, bæði útgáfuna með Ultra HD Blu-ray diskadrifi og Digital Edition.

Helstu eiginleikar:

  • Upprunalegur lóðréttur standur frá Sony.
  • Veitir stöðugan og öruggan stuðning fyrir leikjatölvuna.
  • Sparar pláss og gefur snyrtilegt yfirbragð.
  • Einföld og fljótleg uppsetning.
  • Samhæfur við PlayStation 5 Slim, PlayStation 5 Slim Digital Edition og PlaySation 5 Pro

Eiginleikar

Þyngd pakkningar 0,3 kg
Ummál pakkningar 18,75 × 1 × 18,75 cm