Upplýsingar

Með Ninja ísvélinni getur þú reitt fram uppáhalds ísinn á nokkrum mínútum. Hafðu tilbúið ílát með hráefnum í frystinum og skelltu því beint í vélina. 

Fylla, frysta, hræra og njóta!
Vélin er einföld í notkun. Eina sem þarf að gera er að fylla eitt af þremur ílátum með hráefni, frysta í 24 klst og skella ílátinu svo í vélina. Á nokkrum mínútum getur þú svo notið afrakstursins. Einnig er hægt að halda afgöngum frosnum og njóta seinna.

Eftir þínu höfði
Þú hefur fullt vald yfir því hvað fer í ísinn. Gerðu sælkeraís, sykurlausann, mjólkurlausann eða vegan ís! Þökk sé þremur BPA lausum ílátum getur þú haft allt að 1,4 L af hráefnum tilbúin í frystinum.

Bættu við auka bragði
Þegar að ísinn er tilbúinn getur þú bætti við t.d. ávöxtum eða nammi á einfaldann hátt. Settu hvað sem þig langar í út á ísinn, notaðu +Extras hnappinn og fylgstu með á meðan að vélin hrærir allt saman.

Miklu meira en bara ís
Ísvélin frá Ninja kemur útbúin 6 kerfum auk +Extra kerfinu sem þú getur notað til þess að framreiða hvað sem þig langar í.

  • Ice Cream: Láttu draumana rætast um að útbúa hinn fullkomna ís. Kerfið er sérstaklega hugsað fyrir mjólk eða mjólkurlausa valkosti.
  • Italian: Lengdu sumarið með lúxus Ítölskum rjómaís með fjölbreyttum brögðum.
  • Sorbet: Útbúðu ferskan sorbet með annaðhvort ferskum ávöxtum eða úr dós.
  • Milkshake: Þetta kerfi er fullkomið til þess að útbúa mjólkurhristing.
  • Smoothie Bowl: Blandaðu ávöxtum, jógúrti, hunangi og öðrum heilsusamlegum hráefnum til að útbúa mettandi morgunmat.
  • Light Ice Cream: Kerfi hugsað sérstaklega til að útbúa sykur- eða fituskertan ís.
  • Extras: Þetta kerfi er til þess að blanda nammi og ávöxtum við tilbúinn ís.

Einföld í þrifum
Ekkert mál er að halda vélinni hreinni, en ílát, lok og blöð geta öll farið í uppþvottavélina.

Aðrir eiginleikar

  • Stamir fætur
  • 3x 473 ml ílát
  • Tímamælir
  • 7 kerfi

ATH mikilvægt er að lesa leiðbeiningabækling vel fyrir notkun til að koma í veg fyrir skemmdir á vélinni.

Helstu atriði

  • Ekki setja frosin ber í lausu eða klaka í vélina.
  • Ekki frysta ísskálarnar á hlið. Ísskálarnar þurfa að sitja á flötum grunni við frystingu.
  • Ekki yfirfylla ísskálarnar, haltu þig við MAX FILL merkinguna.

Eiginleikar

Vörumerki

Ninja