Upplýsingar
Digihome 24" 12V sjónvarpið er fullkominn ferðafélagi. Tækið tengist beint við 12V innstungu í bíl og er með innbyggðu Chromecast svo einfalt er að streyma myndefni frá streymisveitum. Einnig er hægt að spila efni beint af USB lykli eða flakkara.
HDR (High Dynamic Range)
HDR tækni tryggir að dekkri hlutar myndarinnar verði enn dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því skarpari mynd og meiri litbrigði.
Innbyggt Chromecast
Streymdu alls kyns myndefni eins og YouTube og Netflix með snjalltæki og njóttu þess á stóra skjánum. Chromecast er samhæft Android, iOS og fartölvum.
Eiginleikar
| Vörumerki | Digihome |
|---|---|
| Orkumerking | E |
| Litur | Svartur |
| Orkunýting | G |
| Skjástærð (″) | 24 |







