Upplýsingar

Skemmtileg barnamyndavél með innbyggðum hitaprentara sem gerir börnum kleift að taka myndir og prenta þær samstundis – án bleks. Myndavélin er sérstaklega hönnuð fyrir litlar hendur og sameinar ljósmyndun, myndbandsupptöku og skapandi afþreyingu í einu tæki.

Hún er með 2,8″ IPS-litaskjá, selfie-myndavél að framan og tekur ljósmyndir í allt að 48 MP upplausn (interpolerað) og myndskeið í allt að 1440p upplausn (interpolerað). Börn geta valið úr fjölbreyttum ramma, síum og myndbrellum áður en myndirnar eru prentaðar á hitapappír. Einnig eru innbyggðir leikir og MP3-spilari sem auka skemmtanagildið.

Helstu eiginleikar:

  • Barnamyndavél með innbyggðum hitaprentara
  • Prentar myndir án bleks
  • 2,8″ IPS-litaskjár
  • Selfie-myndavél
  • Ljósmyndir í allt að 48 MP (interpolerað)
  • Myndbandsupptaka í allt að 1440p (interpolerað)
  • 10x stafrænn aðdráttur
  • 20 myndarammar, 8 myndbrellur og 6 síur
  • Innbyggður MP3-spilari
  • 4 innbyggðir leikir
  • 64 GB microSD minniskort fylgir
  • 3 rúllur af hitapappír fylgja (um 150 myndir samtals)
  • Innbyggð 800 mAh endurhlaðanleg rafhlaða
  • Hleðsla með USB-C

Eiginleikar