DEBUYER PANNA MINERALB 32CM VIÐARHANDF.

DEBUYER 5710.32

DEBUYER PANNA MINERALB 32CM VIÐARHANDF.

DEBUYER 5710.32
14.990 kr
Reiknivél
Lagerstaða
Þessi vara er til á eftirfarandi stöðum..
  • Netverslun
  • Akureyri
  • Ormsson Lágmúla

Mineral B járnpönnurnar frá de Buyer hafa tekið litlum breytingum frá upphafsdögum fyrirtækisins enda ekki þörf á að breyta því sem virkar vel.
Pönnurnar eru ekki bara framleiddar á umhverfisvænan hátt heldur eru þær einnig úr 100% náttúrlegum efnum, 99% úr hágæða járni án allra aukaefna og húðunar eins og PFAO og PTFE.

Pönnurnar koma frá verksmiðjunni í Frakklandi með lífrænni húðun af býflugnavaxi sem verndar pönnuna gegn oxun og auðveldar áframhaldandi húðun.
Við fyrstu notkun birtast dökkir fletir á pönnunni, fyrst með bláum og brúnum tón og á endanum verður pannan alveg svört
Það er fullkomlega eðlilegt, stafar af náttúrulegum áhrifum hita á járnið og af því að olían binst við pönnuna og skapar náttúrulega "non-stick" húð.
Því meira sem þú notar pönnuna því betri verður húðin.

Pönnurnar geta náð miklum hita og eru því mjög hentugar til að grilla, brúna og loka kjöti, elda ommilettur, karamella, steikja egg og fleira.

Til að vernda þá húð sem þú byggir upp með notkun er ekki mælt með því að setja pönnurnar í uppþvottavél eða nota uppþvottalög við hreinsun pönnunar, best er að nota heitt vatn og mjúkan bursta eða svamp.

Mineral B járnpönnurnar virka á allar tegundir helluborða: gas, heilsteyptar hellur, keramik, span. Viðarhandfang.