Upplýsingar

Stílhrein og notendavæn kaffivél sem skilar jöfnuog bragðgott kaffi í hvert skipti. Hún er hluti af PurShine línunni frá Braun og sameinar einfaldleika, áreiðanleika og nútímalega hönnun.

Vélin er búin OptiBrew kerfi sem tryggir rétt hitastig, bruggunartíma og útdrátt fyrir hámarks bragð og ilm í hverjum bolla. Hún rúmar allt að 10 bolla og hentar því jafnt fyrir daglega notkun sem og þegar gestir koma í heimsókn.

Glerkannan (AromaCarafe) heldur hitanum og ilminum lengur, á meðan drop-stop kerfi kemur í veg fyrir leka þegar hellt er í miðri bruggun. Sjálfvirk slökkvun eftir 40 mínútur eykur öryggi og sparar orku.

Hrein og nett hönnun í hvítu gerir hana að flottri viðbót í hvaða eldhús sem er, og auðvelt viðhald tryggir þægilega daglega notkun.

  • OptiBrew kerfi fyrir jafnt og bragðgott kaffi
  • 10 bolla rúmtak
  • Glerkanna (AromaCarafe) sem heldur hita og ilm
  • Drop-stop leka vörn
  • Sjálfvirk slökkvun (40 mín)
  • 1000W afl fyrir hraða upphitun
  • Auðveld í þrifum og notkun

Eiginleikar

Wött (W)

1000

Dropastoppari

Já

Stærð (L)

1,25