Risa Tax Free!

Upplýsingar

Brabantia sort & go ruslatunnan er með loki sem helst opið og frábær fyrir til dæmis almennt rusl eða lífrænan eldhúsúrgang. Þær eru tvær saman og þær passa inn í skápa, sama hvort hurðirnar opnast til hægri eða vinstri. 



Þægindin

Lokið er hægt að taka af henni þegar þarf að skipta um poka eða þú grípur í handfangið á henni og labbar með út og tæmir beint í moltukassann þinn.   



Opnun

Þú þarft bara lyfta upp lokinu til að opna hana.  



Þrifin

Ruslatunnan er mjög auðveld í þrifum. Þurrkar einfaldlega yfir hana með rökum klút bæði að innan sem utan.



Pokar

Í þessa ruslatunnu eru notaðir C pokar og eru 20 stykki á rúllu.  



Endurvinnsla

Þegar að þessi ruslatunna hefur lokið sínu hlutverki verður hún að öllu leyti endurunnin. Hún er Cradle-to-Cradle® vottuð.



Og svo hitt

Ruslatunnan er 12 lítra og eru tvær í kassanum ásamt festingu



Brabantia

fyrirtækið var stofnað árið 1919 í hollenska bænum Aalst í Brabant-héraði. Í upphafi framleiddu þeir mjólkurdósir og könnur en með árunum fjölgaði framleiðsluvörum þeirra. Ruslatunnur hafa verið stór hluti af þeirra framleiðslu í gegnum tíðina, en sú fyrsta af þeim leit dagsins ljós árið 1952. Brabantia framleiðir einnig vörur fyrir eldhús, þvottahús og baðherbergi. Þannig að í meira en 100 ár hefur Brabantia framleitt fallegar og stílhreinar vörur sem sóma sér vel á hvaða heimili sem er.



 


Eiginleikar

Þyngd pakkningar 3,045 kg
Ummál pakkningar 28,5 × 28,5 × 50,5 cm
Vörumerki

BRABANTIA