AEG Veggofn 5000 SurroundCook 71L Svartur
HT944 035 229
AEG veggofn með helstu eldunarkerfum, sjálfhreinsun og kjöthitamælir. Auðveldur í notkun og með góðu innra rými. Stílhreinn og rúmgóður ofn sem gefur þér tækifæri til að vera skapandi í eldhúsinu þínu.
149.900 kr.
Ekki til á lager
Upplýsingar
Gott pláss
Veggofninn er með góðu innra rými eða 71 lítrar og hentar því vel fyrir stór heimili. Þú
getur eldað mikið í einu og hefur nóg pláss fyrir jólakalkúninn.
Sjálfhreinsikerfi
Þú velur hreinsunnarkerfið og tímalengdina og ofninn byrjar
strax að hita sig upp í 500°C og brennir öll óhreinindi að innan. Eftir á er
hægt að strjúka öskuna auðveldlega í burtu.
Kjöthitamælir
Innbyggður kjöthitamælir sem fylgist með kjarnhita matarins og
hjálpar þannig til við að ná sem bestum árangri við eldamennskuna.
Orkunotkun
Þessi veggofn er í orkuflokki A+ sem er þýðir orkusparnað fyrir þig og
umhverfið.
Surround Cook
Ofninn notar viftu til að dreifa heitu lofti á afar skilvirkan hátt, sem
tryggir að maturinn eldist jafnt hvar sem hann er staðsettur í ofninum.
Kerfin
Ofninn er með helstu kerfum eins og blástur, undir og yfirhita, pizza
stilling (blástur með undirhita), grill með blæstri, loftsteikingu og
gufubakstur.
Gufubakstur
Er kerfi sem er fyrst og fremst ætlað fyrir brauðbakstur. Með þessu kerfi
verður skorpan á brauðinu stökk og brauðið mjúkt.
Loftsteiking
Kerfið nýtir viftu ofnsins til að dreifa mjög heitu lofti um
matinn. Þetta líkir eftir djúpsteikingu en notar loft í stað olíu.
Hraðhitun
Sem er snilld þegar mikið liggur á. Þú virkjar aðgerðina og ofninn verður heitur á
mettíma.
Stjórnun
Ofninn er með snertistjórnun og þarf því aðeins létta snertingu
velja rétta aðgerð eða kerfi.
Hurðin
Er með mjúklokun þannig að hún skellist ekki sem verndar bæði hurðina og
ofninn. Auðvelt er að taka ofnhurðina af t.d. þegar þarf að þrífa hana.
Barnalæsing
Hægt er að læsa ofnhurðinni þannig að litlir fingur geti ekki opnað hana.
Stjórnborðið er með barnalæsingu sem kemur í veg fyrir að hægt sé að breyta
stillingum.
Ljósið
Góð lýsing er í ofninum, ljósið slokknar sjálfkrafa eftir vissan tíma.
Fylgihlutir
Kjöthitamælir, 1 djúp skúffa, 2 grunnar skúffur og 1 grind.
Og svo hitt
Glæsilegur ofn sem mun sóma sér vel í eldhúsinu þínu.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 40 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 57 × 60 × 60 cm |
| Vörumerki | AEG |
| Orkumerking | A+ |
| Litur | Svartur |
| Þyngd (kg) | 36 |
| Gerð / Sería | Veggofn |
| Wött (W) | 3500 |
| Sería | 5000 |
| Barnalæsing | Já |
| WiFi | – |
| Stjórnborð | Snertiskjár |
| Öryggi (amp) | 16 |
| Gufukerfi | Steam Bake |
| Hjálparkokkur | – |
| Hraðhitun | Já |
| Kjöthitamælir | Já |
| Klukka | Já |
| Ljós í ofni | 1, Halogen |
| Mjúklokun á hurð | Já |
| SousVide kerfi | Nei |
| Ofnrými lítrar | 71 |
| Grill, vött | 2300 |
| Örbylgja innbyggð | Nei |
| Hitasvið gráður | 30°-300° |
| Sjálfhreinsibúnaður | Pyrolitic |
| Útdráttabrautir | Nei, (hægt að kaupa sem aukahlut) |
| Dual Cook | Nei |
| Dual Door | Nei |
| Innbyggimál HxBxD (cm) | 59 x 56 x 55 |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 59,4 x 59,5 x 56,7 |
| Módel númer | TA5PB522PB |









