AEG Spanhelluborð 7000 m/viftu 80cm Matt
HT949 598 461
389.900 kr.
Á lager
Upplýsingar
Spanhelluborð frá AEG með innbyggðri viftu, sameinar tvö eldhústæki í eitt og mætir þannig helstu þörfum eldhússins. Helluborðið er með samtengjanlegum hellum með SenseFry og kraftmikilli viftu.
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum sem allar verða 21 cm að stærð. Sé þörf á stærra eldunarsvæði er hægt að sameina hellur.
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
SenseFry
Snjalleldunarskynjari sem stillir hitastig hellunnar sjálfkrafa til að koma í veg fyrir að maturinn ofeldist eða brenni
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.
Boostervirkni
Veitir aukakrafti á eldunarsvæðunum í allt að 10 mínútur. Tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.
Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hitanum á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, hentar ílátið fyrir spanhellur.
Hob2Hood
Með Hob2Hood virkninni er hægt að láta helluborðið og viftuna vinna saman. Sogkraftur viftunnar er stilltur eftir þinni matreiðslu.
Innbyggð vifta
Með innbyggðri viftu er einfaldara að skipuleggja eldhúsið. Innbyggða viftan dregur í sig gufu og lykt beint af hellunni svo það verði alltaf hrein og fersk lykt í eldhúsinu þínu.
„Auto Breeze“
Eftir að slökkt hefur verið á viftunni heldur hún áfram að vinna á lægstu hraðastillingu í 20 mínútur. Bæði til þess að tryggja uppgufun rakans og til að eyða þeirri lykt sem eftir kann að vera eftir að þú hefur lokið þinni eldamennsku.
Kolafilter
Skipta þarf reglulega um kolafilter eða á eins til tveggja ára fresti. Viftan lætur vita þegar þarf að skipta um kolafilter og lætur einnig vita þegar þrífa þarf fitufilterið.
Og svo hitt
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé að helluborðinu fyrir slysni. Fitusíur má þvo í uppþvottavél
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 20 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 51 × 80 × 20 cm |
| Vörumerki | AEG |
| Orkumerking | A+ |
| Gerð / Sería | Niðurfellanlegt með viftu |
| Litur | Matt Svartur |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Wött (W) | 7350 |
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Hægt að tengja saman hellur | Já |
| Hob2Hood | Já |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Nei |
| OptiHeat | Já |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Tímastillir | Já |
| Ytri mál í mm HxBxD | 225x800x510 |
| Hella aftari hægri, w/mm | 2300/3200W/180x210mm |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 2300/3200W/210mm |
| Hella fremri hægri, w/mm | 2300/3200W/180x210mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 2300/3200W/210mm |
| Hljóðstyrkur (dBA) | 71 |
| Hraðastillingar | 4 |
| Sogafköst m3/klst | 585/650 |
| Kolafilter fylgir | MCFB88 |
| Gatmál í mm BxD | 750-780×490 |











