Upplýsingar
Spanhelluborð frá AEG með stálkanti, notendavænu stjórnborði, tímastilli og boostervirkni. Glæsilegt helluborð sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsi sem er.
Spanhelluborð
Eru mun fljótvirkari og öruggari en venjuleg helluborð. Botninn á pönnunni og/eða pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta bæði sparar orku og minnkar hitatap við eldun.
Eldunarsvæði
Spanhelluborðið er með fjórum hellum. Ein hellan er 21 cm, tvær eru 18 cm og ein er 14,5 cm að stærð
Stjórnborð
Með sleðatökkum sem eru auðveldir og þægilegir í notkun. Þú einfaldlega stillir hitastigið með því að renna fingrinum eftir sleðatakkanum.
Tímastillir
Fyrir hverja hellu er tímastillir sem slekkur sjálfkrafa á hellunni þegar valinn tími er liðinn.
Boostervirkni
Bætir við aukakrafti á eldunarsvæðunum í allt að 10 mínútur. Tilvalið þegar þarf að snöggsteikja eða ná upp suðu.
OptiHeat
Þrjár forstilltar hitastillingar, til að sjóða, halda heitu eða til að velgja.
Stop&Go
Takkinn setur helluborðið á pásu á meðan þú sinnir óvæntum erindum. Heldur hita á pottinum og þegar pásan er tekin af fer hellan aftur á fyrri stillingu.
Hob2Hood
Með Hob2Hood virkninni er hægt að láta helluborðið og viftuna vinna saman. Sogkraftur viftunnar er stilltur eftir þinni matreiðslu.
Pottar og pönnur
Ekki er víst að allir pottar eða pönnur gangi á spanhellur. Auðvelt er að ganga úr skugga um það með því að setja segul á botninn á pottum eða pönnum, ef segullinn helst á botninum þá, hentar ílátið fyrir spanhellur.
Og svo hitt
Barnalæsingin kemur í veg fyrir að kveikt sé á helluborðinu fyrir slysni.
Eiginleikar
| Wött (W) | 7200 |
|---|---|
| Barnalæsing | Já |
| Boostervirkni | Já |
| Eftirhitagaumljós | Já |
| Gatmál í mm BxD | 560×490 |
| Vörumerki | AEG |
| Litur | Svartur |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Gerð / Sería | Stálrammi |
| Tegund | Spanhelluborð |
| Hljóðstyrkur (dBA) | Á ekki við |
| Hella aftari hægri, w/mm | 1800/2800W/180mm |
| Hella aftari vinstri, w/mm | 1800/2800W/180mm |
| Hella fremri hægri, w/mm | 1400/2500W/145mm |
| Hella fremri vinstri, w/mm | 2300/3700W/210mm |
| Hægt að tengja saman hellur | Nei |
| Hob2Hood | Já |
| Hægt að gera hlé á eldun | Já |
| WiFi | Nei |
| OptiHeat | Já |
| Sjálfvirk öryggisslökkvun | Já |
| Tímastillir | Já |
| Útskurðarradíus | 5° |
| Kolafilter fylgir með | Á ekki við |
| Hella fyrir miðju w/mm | Á ekki við |
| Ytri mál í mm HxBxD | 46x576x516 |
| Sogafköst mest (m3/klst) | Á ekki við |





