Útsala!

Upplýsingar

AEG kæliskápur til innbyggingar með frystir niðri. Kæliskápurinn er með hraðfrystingu og hann er góð lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsinnréttingu sem er.



Kæliskápurinn

Er 195 lítrar að rúmmáli með einni skúffu. Fjórar hillur eru í skápnum og að auki er gott gleymslupláss í hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.



Frystirinn

Er 62 lítrar að rúmmáli og með þremur skúffum. Frystigeta er allt að 4.5 kg á sólarhring.



Stjórnborð

Er með snertitökkun, auðvelt og þægilegt í notkun.



Hraðfrysting

Sem er frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt. Aðgerðin hækkar frystistigið niður -24°C í 48 klukkustundir og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.



Lýsing

LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. Veldu þann kæliskáp sem er með þeirri lýsingu er best hentar þínum þörfum. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Hurðarviðvörun

Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð.



Og svo hitt

Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.


Eiginleikar