Risa Tax Free!

Upplýsingar

AEG kæliskápur til innbyggingar með frysti niðri. Kæliskápurinn er með hraðkælingu og hann er góð lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Flottur og stílhreinn kæliskápur sem mun sóma sér vel í hvaða eldhúsinnréttingu sem er.



Kæliskápurinn

Skápurinn er 194 lítrar að rúmmáli með einni skúffu. Fjórar hillur eru í skápnum og að auki er gott gleymslupláss í hurð kæliskápsins. Þannig að þú hefur nóg pláss til að geyma matinn þinn.



Frystirinn

Frystirinn er með 62 lítra rúmmáli og þremur skúffum. Frystigeta er allt að 7 kg á sólarhring.



NoFrost

Sjálfvirk afhríming gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afþíða kæliskápinn þinn þar sem ekki myndast hrím innan í honum og sparar þú þannig fullt af tíma og fyrirhöfn.



GreenZone skúffan

Með því að opna og loka loftraufunum getur þú stjórnað rakastiginu í grænmetisskúffunni. Þannig  eykur þú geymslutíma grænmetis og ávaxta.



Stjórnborð

Með snertitökkun, auðvelt og þægilegt í notkun. Kæliskápurinn er með rafrænni hitastýringu sem tryggir nákvæmara kælistig í skápnum.



Hraðkæling

Hraðkæling tryggir að hægt er að kæla mikið magn af mat eða drykkjum á fljótlegan og skilvirkan hátt. Aðgerðin lækkar kælistigið niður +2°C í sex klukkustundir og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.



Hraðfrysting

Sem er frábær þegar frysta þarf mikið magn af mat á fljótvirkan og skilvirkan hátt. Aðgerðin hækkar frystistigið niður -24°C í 48 klukkustundir og fer síðan sjálfkrafa aftur í fyrri stillingu.



CleanAir

Hreinsar loftið og fjarlægir alla lykt.    



Lýsing

LED lýsing sem gefur góða birtu en mikilvægt er að hafa góða birtu þegar þú opnar kæliskápinn þinn. Veldu þann kæliskáp sem er með þeirri lýsingu er best hentar þínum þörfum. LED perur nota mjög litla orku og eru mun endingarbetri en venjulegar perur.



Viðvörun

Skápurinn lætur vita ef hurðin á honum er of lengi opin eða ekki rétt lokuð. Lætur þig líka vita ef hitastigið í honum verður óeðlilega hátt.



Og svo hitt

Auðvelt er að halda kæliskápnum hreinum en þú einfaldlega þurrkar innan úr honum annað slagið með rökum klút og skápurinn þinn alltaf líta út eins og nýr. Lamir eru hægra megin en hægt er að breyta hurðaropnun.



 


Eiginleikar

Vörumerki

AEG

Orkumerking

2019E