AEG INNBYGGÐ UPPÞVOTTAVÉL
HT911 536 620
Innbyggð uppþvottavél frá snillingunum í AEG. Hönnuð
með sérstakri áherslu á öruggan þvott fyrir viðkvæm glös og þvær borðbúnað
fyrir allt að 14 manns. Með sleðabúnaði á hurð, 7 þvottakerfi og sjálfvirkri
opnun. Þessi uppþvottavél á eftir að sóma sér vel í eldhúsinu þínu.
Original price was: 139.990 kr..79.990 kr.Current price is: 79.990 kr..
Á lager
Upplýsingar
Undir borðplötu
Þessi
uppþvottavél er ætluð til uppsetningar undir borðplötu og kemur því án
toppplötu.
Sleðabúnaður
Þegar hurðin er opnuð þá rennur hún á sérstökum sleðum og því gengur þessi
uppþvottavél fyrir flestallar sökkulhæðir, þó ekki allar.
Stjórnborð
Skjár sem sýnir tímalengd á þvottakerfum. Með því að draga fingurinn eftir
stjórntakkanum ákveður þú lengd þvottakerfisins. Um leið og þú lokar
uppþvottavélinni byrjar hún að þvo.
Þvottakerfi
Uppþvottavélin býður upp á 7 þvottakerfi m.a. sjálfvirkt, hraðkerfi
og sérstakt þvottakerfi fyrir vélina.
Hreinsun
Machine Care er þvottakerfi sem er hannað til að hreinsa vélina að innan.
Það fjarlægir m.a. uppsafnaða fitu og lætur þig vita þegar komin er tími á
hreinsun.
Loftþurrkun (AirDry)
Náttúruleg leið til að þurrka leirtauið strax eftir þvott þar sem
hurðin opnast sjálfkrafa þegar þvottakerfið er búið.
Sparar vatn og orku
Minnkar vatns- og orkunotkun þegar sparnaðarkerfið er notað.
Sjálfvirk slökkvun
Þú þarf ekki lengur að muna eftir að slökkva á uppþvottavélinni. Hún gerir
það sjálf 10 mín eftir að hún hefur lokið þvotti.
Ljós á gólf
Þegar uppþvottavélin er í gangi varpar hún rauðu ljósi á gólfið.
Grindur
Glasagrindina er hægt að hækka og lækka og diskagrindin er með
niðurfellanlegum rekkum sem er þægilegt þegar verið er að þvo stóra hluti.
Búin!
Þú getur stillt vélina þannig að hún gefi frá sér hljóðmerki þegar hún er
búin að þvo.
Starttímaseinkun
Nennir þú ekki að hafa vélina í gangi á meðan þú horfir á fréttirnar?
Ekkert mál þú einfaldlega stillir uppþvottavélina fram í tímann og lætur hana
byrja að þvo þegar þér hentar.
Og svo hitt
Athugið!
Innréttingahurð til að setja á vélina fylgir ekki með.
Eiginleikar
| Þyngd pakkningar | 42 kg |
|---|---|
| Ummál pakkningar | 60 × 65 × 90 cm |
| Vörumerki | AEG |
| Orkumerking | C |
| Litur | Hvítur |
| Lengd kapals | 1,5 m |
| Gerð / Sería | Innbyggð |
| Sería | 6000 |
| Vatnsnotkun (L) | 10,5 |
| Sjálfvirk Slökkvun | Já (10 mín eftir að þvotti líkur) |
| Hljóðflokkur | 44 dB (B) |
| Tímaval | Já (Hægt að seinka gangsetningu í allt að 24 kslt) |
| Öryggi (amp) | 10 |
| Orkunýtni á 100 lotur | 75 kWh |
| Innbyggimál HxBxD (cm) | 82-90 x 60 x 55 |
| Tækjamál HxBxD (cm) | 81,8 – 89,8 x 59,6 x 55 |
| Vatnsöryggi | Já |
| Hurðarhæð minnst/mest (cm) | 64,5 – 77,6 |
| Hurðarþyngd minnst/mest (kg) | 2 – 10 |
| AirDry þurrkun | Já |
| ComfortLift | Nei |
| ComfortRail | Nei |
| Fjöldi hitastiga | 3 |
| Fjöldi vatnsarma | 3 |
| Fjöldi þvottakerfa | 7 |
| Útdraganleg hnífaparagrind | Já |
| Hnífaparakarfa | Nei |
| Lengd affallsbarka (cm) | 150 |
| Lengd inntaksslöngu (cm) | 150 |
| Ljós í uppþvottavél | Nei |
| SprayZone | Nei |
| TimeBeam | Nei |
| Beam on floor | Já (Varpar rauðu ljósi á gólfið) |
| Módel númer | F64SV907Z |
| Strikamerki | 7333394069128 |
| Vörunúmer | HT911 536 620 |
| Þvær borðbúnað fyrir | 14 |







